Fulltrúar frá 14 löndum á Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni 4. febrúar 2011 09:44 Kaupstefnan er haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands
Ferðakaupstefnan Mid-Atlantic 2011 er stærsta ferðakaupstefnan sem haldin er á Íslandi. Hún er nú haldin í 19. sinn. Kaupstefnan er haldin á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands. Hún er árlegur lykilviðburður í ferðaþjónustunni. Hún stendur nú yfir dagana 3.-6. febrúar og fer fram í Laugardalshöllinni. Katrín Júlíusdóttir, ráðherra ferðamála, mun heimsækja kaupstefnuna um klukkan tvö í dag. Fulltrúar á Mid-Atlantic eru nú yfir 500 alls frá 14 löndum. Að þessu sinni koma um 300 fulltrúar frá þeim löndum sem hafa mikil ferðaþjónustutengsl við Ísland í Evrópu og Norður-Ameríku. Sérstaka athygli vekur jafnan þegar nýir aðilar kynna sig til leiks og í ár verða meðal þátttakenda sendinefndir frá Seattle og Washington í Bandaríkjunum og frá Árósum, Óðinsvéum, Billund og fleiri stöðum í vestanverðri Danmörku að ógleymdum fulltrúum Lególands sjálfs. Þátttakendur eru fulltrúar ferðaskrifstofa, hótela, bílaleiga, skemmtigarða og margvíslegra annarra ferðaþjónustufyrirtækja og að auki taka þátt ferðamálaráð á norðurlöndum og ferðamálaráð þeirra svæða og borga sem Icelandair flýgur til í Norður-Ameríku. „Mikilvægi ferðaþjónustunnar fyrir íslenskt samfélag hefur aukist og það er áríðandi fyrir okkur að grípa öll þau viðskiptatækifæri sem bjóðast," segir Helgi Már Björgvinsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair. „Þau tengsl sem myndast á Mid-Atlantic eru ein af undirstöðum í ferðþjónustunni. Sá aukni áhugi sem við finnum. erlendis frá er þess vegna mjög ánægjulegur. Þetta er einn helsti vettvangur fyrir íslenska ferðaþjónustu að selja og kynna sína vöru beint fyrir kaupendum. En einnig eru hér til dæmis bandarísk fyrirtæki að kaupa ferðaþjónustu frá Norður-Evrópu sem þeir síðan selja neytendum vestra og öfugt. Ísland er miðpunkturinn í öllu þessu starfi, líkt og í leiðarkerfi okkar, en á kaupstefnunni eru kynningarfundir, sölusýningar, stuttar ferðir og þemakvöld," segir Helgi Már.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Sjá meira