Segir Ólaf Ólafs ekki fá krónu út úr Kjalari 24. febrúar 2011 16:00 Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjalars. „[
Ljóst er] að eigendur Kjalars munu aldrei fá krónu út úr félaginu," segir í yfirlýsingu frá Kjalari, félagi Ólafs Ólafssonar, en Kjalar hefur krafið þrotabú Kaupþings banka um 115 milljarða króna vegna gjaldeyrisskiptasamnings sem endurnýjaður var 6. október 2008 í miðju bankahruninu. Þetta fullyrðir Kjalar í yfirlýsingu. Ólafur Ólafsson var stjórnarformaður Eglu, en er það ekki lengur. Félagið á fjárhagslegra hagsmuna að gæta í málinu. Félagið hefur höfðað mál gegn þrotabúi bankans í þessum tilgangi og verður fyrirtaka í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Kjalar krefst þess að gjaldeyrisskiptasamningurinn við Kaupþing banka verði gerður upp á genginu 305 krónur fyrir hverja evru, sem er skráð gengi Seðlabanka Evrópu 14. október 2008, á uppgjörsdegi samkvæmt framlengdum gjaldeyrisskiptasamningi. Slitastjórn Kaupþings telur kröfuna fráleita og að hún sé hvorki varin af settum lagareglum eða óskráðum meginreglum, en lögmaður slitastjórnar Kaupþings sagði jafnframt í hádegisfréttum á Bylgjunni að engin sanngirni væri „í því að menn græði 100 milljarða króna á átta daga gömlum samningi," og vísaði til þess að samningurinn var endurnýjaður 6. október 2008 en uppgjörsdagur var átta dögum síðar.Skiptir miklu um skiptingu eignanna Í yfirlýsingu Kjalars segir að félagið hafi gert samkomulag við lánardrottna sína um úrvinnslu á eignum. Sérstök nefnd lánardrottna fari með stjórn þess. Þar segir að eignir Kjalars séu nú 6 milljarðar í reiðufé og skuldabréfum auk eignarhlutar í HB Granda sem sé veðsettur Arion banka. Þá segir: „Ljóst er að gjaldmiðlaskiptasamningurinn veldur miklu um skiptingu eignanna. Ef Kjalar vinnur málið, skiptast allar eignir milli Glitnis og Eglu." Fari svo að Kjalar tapi málinu skiptist eignirnar í samræmi við kröfur á félagið skömmu eftir hrun en þær munu gróflega verið þannig að Arion banki var með 75 prósent af kröfum, Glitnir 15 prósent og Egla, fyrrverandi dótturfélag Kjalars, um 10 prósent. Þess ber að geta að Ólafur Ólafsson er stjórnarformaður Eglu. „Í ljósi þessa var einróma samkomulag í lánardrottnanefndinni um að ekki væri unnt að skipta eignum Kjalars þar til niðurstaða þessa máls liggur fyrir. Óháð niðurstöðu málsins er hinsvegar ljóst að eigendur Kjalars hf. munu aldrei fá krónu út úr félaginu," segir í yfirlýsingu Kjalars en hana sendir Einar Karl Haraldsson, almannatengill. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira