Rýr svör á Alþingi um fyrirtækjasölu Landsbankans 17. janúar 2011 15:25
Fram kemur í svari NBI hf./ Landsbankans við fyrirspurn á Alþingi að hann telur sér almennt ekki skylt að svara fyrirspurnum alþingismanna um önnur málefni en þau sem teljast opinber. Guðlaugur Þór Þórðarsonar þingmaður Sjálfstæðisflokksins spurði fjármálaráðherra um sölu Landsbankans á fyrirtækjum. Fyrirspurnin hljóðar svo: „Á hvaða verði og kjörum selur Landsbankinn EJS, HugAx, Húsasmiðjuna, Icelandic Group, Plastprent, Skýrr, Teymi og Vodafone? Hvernig skiptist kaupverðið, hvert verður virði hlutafjár og skulda og hvaða skuldir verða yfirteknar? Svar óskast sundurliðað eftir fyrirtækjum." Í svarinu segir að þar sem Bankasýsla ríkisins fer með hlut ríkissjóðs í NBI hf. - Landsbankanum óskaði ráðuneytið eftir því við Bankasýsluna að hún afhenti ráðuneytinu þær upplýsingar sem óskað var eftir. Í svari Bankasýslunnar kom fram að hún byggi ekki yfir framangreindum upplýsingum en stofnunin hefði óskað eftir því við NBI hf. - Landsbankann að umræddar upplýsingar yrðu veittar. Svar við fyrirspurn þessari byggist því á svörum NBI hf. - Landsbankans. „Gengið hefur verið frá kaupum Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) á eignarhaldsfélaginu Vestia af NBI hf. - Landsbankanum með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Kaupverð FSÍ er 15,5 milljarðar kr. en NBI hf. - Landsbankinn heldur eftir 19% hlut í Icelandic Group í stað þess að selja félagið að fullu. FSÍ hefur kauprétt á þeim 19% hlut í allt að 12 mánuði. Þau félög sem fylgja með í kaupum FSÍ á Vestia eru Icelandic Group, Teymi, Húsasmiðjan og Plastprent. Samkvæmt fyrirliggjandi samningi er gert ráð fyrir því að verðmæti alls hlutafjár Icelandic Group hf. sé 13,9 milljarðar kr. en þess ber að geta að kaupverð getur lækkað vegna ákvæða um skaðleysi eða ef tilteknar forsendur varðandi rekstur félagsins bregðast. Kaupverð annarra eignarhluta var ekki sundurliðað samkvæmt samningum en umsamið heildarkaupverð þeirra hluta er 4,25 milljarðar kr. Með sölu á umræddum fyrirtækjum til FSÍ styrkist efnahagsreikningur NBI hf. - Landsbankans verulega sem lýsir sér í því að eigið fé bankans hækkar og eignir til sölu lækka verulega. Fram kemur í svari NBI hf. - Landsbankans að hann telur sér almennt ekki skylt að svara fyrirspurnum alþingismanna um önnur málefni en þau sem teljast opinber. Einnig er í kaupsamningi um umræddar eignir að finna skuldbindingu um að aðilar veiti ekki upplýsingar um efni hans nema lög mæli svo fyrir eða aðilar verði sammála um að veita afmarkaðar upplýsingar um efni hans. Enn fremur ber að geta þess að ekki er unnt að veita upplýsingar um viðskiptamálefni þeirra félaga sem samningurinn tekur til."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira