Þriðjungur atvinnulausra án vinnu í meir en ár 17. janúar 2011 11:56
Gríðarleg breyting hefur orðið á fjölda þeirra sem hafa verið atvinnulausir í meira en ár og hafa þeir aldrei mælst fleiri en nú. Þannig höfðu 4.969 einstaklingar verið án atvinnu í meira en ár, eða sem nemur ríflega þriðjungi atvinnulausra, en á sama tíma í fyrra voru þeir 3.224 talsins eða um 21% atvinnulausra. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem gluggað er í nýjustu atvinnuleysistölurnar sem Vinnumálastofnun sendi frá sér fyrir helgina. Í Morgunkorninu segir að undanfarna mánuði hefur verulegur fjöldi einstaklinga verið atvinnulaus í meira en 6 mánuði. Þannig voru alls 13.972 einstaklingar atvinnulausir í lok desember og hafði um 7.221 þeirra, eða sem nemur um 52%, verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Í lok desember fyrir ári voru 15.329 einstaklingar atvinnulausir og þar af um 49% sem höfðu verið án atvinnu í 6 mánuði eða lengur. Hefur því ekki mikil breyting orðið á hvað þennan fjölda varðar. Ekki er við öðru að búast en að atvinnuleysi haldi áfram að aukast á næstunni. Er það einna helst vegna hefðbundinnar árstíðarsveiflu, en þar að auki eru vísbendingar um að slakinn í hagkerfinu láti einnig til sín taka. Má hér benda á niðurstöður úr nýjustu viðhorfskönnun Capacent Gallup, sem gerð var í desember síðastliðnum á meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins og niðurstöður eru birtar um á heimasíðu SA. Þær gefa til kynna að enn syrti í álinn á næstu mánuðum á vinnumarkaði, en mun fleiri fyrirtæki höfðu í hyggju að fækka starfsmönnum en fjölga þeim, eða um 26% á móti 14%. Það er jafnframt heldur lakari niðurstaða en í síðustu könnun sem gerð var í september síðastliðnum. Vinnumálastofnun áætlar að atvinnuleysi komi til með að verða á bilinu 8,3% til 8,6% nú í janúar en á sama tíma fyrir ári síðan mældist það 9,0%. Mest fór það upp í 9,3% í febrúar/mars í fyrra og reikna má einnig með að atvinnuleysi komi til með að ná hámarkinu á árinu á þessu tímabili.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira