Eyraroddi gjaldþrota 17. janúar 2011 20:19 Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður Eyrarodda.
Héraðsdómur Vestfjarða hefur úrskurðað fiskvinnsluna Eyrarodda hf. á Flateyri gjaldþrota. Stjórn fyrirtækisins og umsjónarmaður nauðasamninga félagsins lögðu fram beiðni þess efnis fyrir dómara í dag. „Það eru stjórn Eyrarodda mikil vonbrigði að ekki hafi tekist að tryggja áframhaldandi rekstur á Flateyri," segir stjórnarformaðurinn Teitur Björn Einarsson í tilkynningu. Í lok október var öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins sagt upp störfum en um var að ræða 42 starfsmenn. Á þriðja hundrað manns búa á Flateyri. Að undanförnu hefur stjórn Eyrarodda unnið að fjárhagslegri endurskipulagninu fyrirtækisins í samvinnu við kröfuhafa þess. „Niðurstaða þeirra viðræðna var sú að nauðasamningur fyrir félagið var samþykktur en ekki tókst að útvega nægt fjármagn til að halda áfram rekstri og mæta áföllnum skuldbindingum. Því var í dag óumflýjanlegt að óska eftir skiptum," segir Teitur Björn. Í upphafi hafi legið fyrir að rekstur fiskvinnslu án kvóta yrði mjög erfiður. „Þrátt fyrir það reyndu forsvarsmenn félagsins að koma af stað rekstri á Flateyri en því miður tókst ekki að afla nægs hráefnis til þess að fiskvinnslan stæði undir sér. Sá byggðakvóti sem hafði verið ætlaður Flateyri á árunum 2007 til 2010 var lítill. Jafnframt fór svo að mikill dráttur varð á úthlutun hans." Þá segir Teitur Björn í tilkynningunni: „Eftir að tilkynnt var um 300 tonna byggðakvóta til Flateyrar í nóvember síðast liðnum, reyndu forsvarsmenn félagsins, samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu, að skjóta styrkari stoðum undir rekstur félagsins með því að tengja saman útgerð með kvóta og fiskvinnsluna á Flateyri. Það tókst því miður ekki."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Sjá meira