Friðrik og Einar Árni taka við Njarðvíkurliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. janúar 2011 18:23 Einar Árni þjálfaði síðast Breiðablik í efstu deild.
Njarðvíkingarnir Friðrik Ragnarsson og Einar Árni Jóhannsson munu í sameiningu taka við meistaraflokksliði Njarðvíkur í körfuboltanum en Sigurður Ingimundarson hætti sem þjálfari liðsins í gær. Leikmönnum var tilkynnt um nýju þjálfarana á leikmannafundi í kvöld. Friðrik og Einar Árni hafa báðir gert Njarðvíkinga að Íslands- og bikarmeisturum en Friðik þjálfaði liðið frá 2000 til 2004 og Einar Árni tók við af honum og var með liðið frá 2004 til 2007. Friðrik gerði Njarðvíkinga að Íslandsmeisturum 2001 og 2002 og liðið vann bikarinn undir hans stjórn árið 2002. Einar Árni gerði Njarðvík að Íslandsmeisturum 2006 og liðið varð bikarmeistari undir hans stjórn árið áður. Það hefur lítið gengið hjá Njarðvík í körfunni vetur en liðið er í 10. sæti Iceland Express deild karla og datt út fyrir Haukum í átta liða úrslitum Powerade-bikarsins á sunnudaginn. Það reyndist vera síðasti leikur liðsins undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar sem er búinn að þjálfa liðið frá haustinu 2009 þegar hann tók við liðinu af bróður sínum Vali Ingimundarsyni. Fyrsti leikur Njarðvíkurliðsins undir stjórn þeirra Einars Árna og Friðriks verður á móti ÍR í Ljónagryfjunni í Njarðvík á sunnudagskvöldið. Liðin eru í 10. og 11. sæti deildarinnar og eins og staðan er núna þá er þetta leikur upp á líf og dauða í fallbaráttunni.
Dominos-deild karla Mest lesið Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn María að gera Þóri að afa Fótbolti „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Handbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Fótbolti Fleiri fréttir Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Sjá meira