Norðmenn og Íslendingar geta sameinast um Jan Mayen 2. janúar 2011 19:30
Einn kunnasti olíuráðgjafi Noregs telur að breytingar á íslensku olíuskattkerfinu séu forsenda þess að starfsemi hefjist á Drekasvæðinu og segir að Norðmenn og Íslendingar geti sameinast um að gera Jan Mayen-svæðið aðlaðandi til olíuleitar. Hans Henrik Ramm hefur setið á norska Stórþinginu, verið aðstoðarolíumálaráðherra, en starfar nú sem ráðgjafi og dálkahöfundur um olíuiðnað Noregs. Í ítarlegri grein um nýlega ákvörðun norsku ríkisstjórnarinnar að opna Jan Mayen-svæðið til olíuleitar segir hann að það hafi verið heppni fyrir Noreg að fyrsta olíuútboð Íslands í fyrra á Drekasvæðinu skyldi hafa klúðrast. Hann segir að tvö norsk olíufélög, Sagex og Aker Petrolium, hafi séð mikil tækifæri á svæðinu, og fleiri verið áhugasöm, þrátt fyrir krefjandi aðstæður, en þau hefðu sennilega þurft fleiri og stærri samstarfsaðila. Þau hafi hins vegar bæði hætt við og telur Hans Henrik að ónothæft skattkerfi Íslands hafi þar ráðið miklu. Íslenska fjármálaráðuneytinu hafi tekist að búa til svo illskiljanlegt skattkerfi, að það eitt og sér dugði til að fæla olíufélögin frá, þrátt fyrir ýmsa jákvæða þætti. Hans Henrik býst hins vegar við að Íslendingar lagi skattkerfið og bjóði út að nýju og þannig sé mögulegt að þeim takist að koma starfseminni af stað. Af þeirri ástæðu sé nauðsynlegt fyrir Norðmenn að hefjast einnig handa á svæðinu og telur hann að þjóðirnar geti unnið saman að því að gera olíuleit þar aðlaðandi. Meginhluti greinarinnar er hins vegar gagnrýni á norska ríkisstjórnina og olíumálaráðherrann er sakaður um sýndarmennsku með opnun Jan Mayen-svæðisins því ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna komi í veg fyrir að olíuleit verði heimiluð á mun áhugaverðari svæðum undan Noregsströndum, við Lófót og Vesturál.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira