Fjöldi vísindamanna gagnrýnir þingmenn 11. febrúar 2011 07:00 Eiríkur Steingrímsson, prófessor. 37 vísindamenn frá níu rannsóknarstofnunum hafa sent bréf til Alþingis þar sem þingsályktunartillaga um bann við útiræktun á erfðabreyttum lífverum er harðlega gagnrýnd. Tillagan sögð full af rangfærslum og lýsa vanþekkingu.
Harðort bréf hefur borist Alþingi frá 37 vísindamönnum þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við þingsályktunartillögu um bann við útiræktun erfðabreyttra lífvera. Flutningsmenn frumvarpsins eru átta frá þrem stjórnmálaflokkum; Vinstri grænum, Hreyfingunni og Samfylkingunni. Tillaga þingmannanna er sögð full af rangfærslum og lýsa algjörri vanþekkingu þeirra á málaflokknum. Í bréfinu er sagt að augljóst sé að höfundar hafi ekki faglega þekkingu á viðfangsefninu og mjög takmarkaðan skilning á líffræði, þróunarfræði, erfðafræði eða eðli erfðabreyttra lífvera. Í tillögunni er lagt til að starfshópur á vegum ríkisstjórnarinnar undirbúi lagabreytingar sem varða útiræktun á erfðabreyttum lífverum. Slík ræktun fari þá í kjölfarið einungis fram inni í lokuðum gróðurhúsum eða tilraunastofum. „Það stenst nánast ekkert sem fylgir þessari tillögu. Þetta er eiginlega bara allt rangt," segir Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild HÍ og talsmaður hópsins. „Það er ótrúlegt að þingmennirnir hafi látið þetta frá sér." Eiríkur segir að um alvarleg mistök sé að ræða í tillögunni og hópurinn sé alfarið á móti henni, enda óþörf. „Við teljum að það þurfi ekki að banna erfðabreyttar lífverur, þar sem þær eru gríðarlega mismunandi eftir tegundum, erfðabreytingu og öðru slíku," segir Eiríkur. „Við erum nú þegar með lög og reglur um þessi mál og starfandi nefnd sem fer yfir hvert tilfelli. Það er ekki hægt að vinna með erfðabreyttar lífverur án þess að fá leyfi." Eiríkur bendir einnig á að útiræktun sé aldrei leyfð nema nema það séu sterk, vísindaleg rök fyrir því að hún hafi ekki áhrif á umhverfið. Þráinn Bertelsson, þingmaður VG, er einn flutningsmanna og svaraði hann bréfi vísindamannanna í gærdag. „Þakka ykkur innilega fyrir að leyfa okkur flutningsmönnum að njóta leiðsagnar ykkar og yfirburða vísindaþekkingar. Það fegursta við vísindin er þekking laus við hroka," segir Þráinn í bréfi sínu. Vísindamennirnir 37 starfa hjá Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hólaskóla, Matís, Matvælastofnun, Biopol og Íslenska erfðagreiningu. Enginn þeirra vinnur að rannsóknum sem miða að því að sleppa erfðabreyttum lífverum út í umhverfið og enginn þeirra á beinna hagsmuna að gæta. sunna@frettabladid.is
Mest lesið „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira