Android framúr iPhone hjá Símanum á innan við ári 10. febrúar 2011 12:26
Það hefur tekið Android innan við ár að fara framúr iPhone þegar litið er til fjölda notenda og gagnamagnsflutninga hjá Símanum. Í tilkynningu segir að Síminn hóf sölu á Android símum í mars á síðasta ári en salan á þeim rauk ekki upp fyrr en á síðari hluta ársins 2010 og sýna tölur að fjöldi notenda tvöfaldaðist á tímabilinu september á síðsta ári til janúar 2011. Android er opið stýrikerfi frá Google sem tengir farsímann fyrirhafnarlaust við hvers kyns samskiptasíður, leiki og smáforrit á vefnum. Margir farsímaframleiðendur framleiða Android síma og eru notkunarmöguleikarnir nánast óendanlegir. Til eru tugir þúsundir ef ekki yfir 100.000 smáforrita til þess að nota í Android símanum í ýmsum tilgangi, hvort sem er við vinnu eða í frístundum. Þar sem kerfið er opið getur hver sem getur og vill, búið til smáforrit fyrir Android og ný bætast við á hverjum degi. „ Við höfum sjaldan séð nýjung á farsímamarkaði seljast svo hratt frá því að hún kemur á markað. Það kemur þó ekki á óvart að notkunin á Android sé fljót að ná þessum hæðum því margir framleiðendur framleiða Android síma og þeir eru því á breiðu verðbili þannig að allflestir ættu að geta eignast Androidtæki," segir Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans í tilkynningunni. „Auk þess má leiða líkum að því að iPhone hafi kynnt og kennt heiminum á snjallsíma og því voru margir móttækilegir fyrir þessari nýju tækni þegar Android kom á markað."
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira