Að fara eða vera? Ólafur Þ. Stephensen skrifar 8. mars 2011 08:58 Forsvarsmenn stórra fyrirtækja í alþjóðlegum rekstri eru ekki ánægðir með rekstrarumhverfið sem þeim er boðið upp á hér á landi. Í síðasta helgarblaði Fréttablaðsins gagnrýndi Niels Jacobsen, stjórnarformaður Össurar, hringlandahátt og flumbrugang stjórnvalda harðlega, en daginn sem viðtalið var tekið ákvað aðalfundur Össurar að afskrá félagið úr Kauphöll Íslands. "Það er erfitt að reka fyrirtæki í landinu þegar lögum og reglum er breytt. Sumar er erfitt að fá nokkurn botn í en aðrar eru afturvirkar. Það er erfitt að reka fyrirtæki með afturvirkum lögum," segir Jacobsen. Á meðal þess sem hann hefur út á að setja er hringl með reglur um yfirtökuskyldu, gjaldeyrishöft og kynjakvóti í stjórnum. Um íslenzku krónuna segir hann: "Við getum ekki verið skráð á hlutabréfamarkað sem notar gjaldmiðil sem er ekki nothæfur." Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri tölvuleikjafyrirtækisins CCP, tók í svipaðan streng í fréttum Stöðvar 2 á laugardagskvöld og sagði stefnuleysi stjórnvalda stórt vandamál fyrir atvinnurekstur í landinu. "Í gjaldeyrismálum finnst mér stefnan bara ekki liggja fyrir ... Það er vissulega verið að sækja um í Evrópusambandinu og ef það verður reyndin er það eitthvað sem hægt er að reiða sig á," sagði Hilmar. Það er ástæða til að hlusta á talsmenn þessara fyrirtækja. Afskráning Össurar úr kauphöllinni er áfall fyrir hlutabréfamarkaðinn hér á landi og sömuleiðis fyrir orðspor landsins í alþjóðlegu viðskiptalífi - ekki sízt þegar stjórnarformaðurinn talar eins og hann gerir. Niels Jacobsen er þekktur í viðskiptalífi Danmerkur og víðar og eftir orðum hans er tekið. Það er reyndar erfitt að vorkenna stjórnendum Össurar að þurfa að finna aðra konu til viðbótar þeirri einu, sem situr í fimm manna stjórn fyrirtækisins, en aðra gagnrýni Jacobsens hljóta stjórnvöld að taka til sín. Eftir það áfall sem íslenzkt efnahagslíf varð fyrir við bankahrunið ættu stjórnvöld að kappkosta að bjóða fyrirtækjum upp á sem stöðugast viðskiptaumhverfi, í stað þess að hringla til og frá með skatta, gjöld og reglur. Gjaldmiðilsmálin eru svo sérkapítuli. Öllum er ljóst að krónan getur ekki orðið framtíðargjaldmiðill Íslands. Um það eru stjórnendur fyrirtækja og almenningur í landinu sammála. Umsóknin um aðild að ESB ætti að vera sterk yfirlýsing um að hér sé stefnt að upptöku evru og þeim aga í hagstjórn sem henni fylgir, en vegna þess að ríkisstjórnin er sjálfri sér sundurþykk í Evrópumálunum er sú yfirlýsing mun veikari en ella og fyrirtækin telja áfram að óvissa ríki um framtíðina. Fyrirtæki í alþjóðlegum rekstri, sem eiga þess kost að fara annað til að útvega sér fjármagn, grípa tækifærið. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sagðist í fréttum Stöðvar 2 á laugardaginn vorkenna þeim sem eftir sætu og rækju fyrirtæki við þessar aðstæður. Þeir eiga ekki kost á alþjóðlegu fjármagni á alþjóðlegum kjörum. Sú spurning hlýtur að vakna hvað upprennandi fyrirtæki -næsti Össur eða næsta CCP - sem eiga möguleika á að verða umsvifamikil á alþjóðavettvangi, gera til að tryggja sér stöðugleika og fjármögnun. Ákveða þau að fara eða vera? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Mest lesið Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun