Íslandsbanki hættir að senda út reikningsyfirlit 6. janúar 2011 12:46
Íslandsbanki hefur ákveðið að hætta útsendingu reikningsyfirlita til einstaklinga í viðskiptum við bankann. Yfirlitin verða aðgengileg öllum viðskiptavinum í Netbanka, en þeir viðskiptavinir sem óska þess sérstaklega geta fengið yfirlitin prentuð út og send í pappírsformi. Er þetta gert til þess að spara kostnað auk þess sem Íslandsbanki leggur áherslu á að vera umhverfisvænn vinnustaður. Sparnaður og minnkandi þörf fyrir yfirlit Mikill meirihluti viðskiptavina notar nú Netbanka til að nálgast öll yfirlit yfir reikninga. Einnig hefur þörf viðskiptavina fyrir áramótayfirlit minnkað verulega eftir að allar upplýsingar um inneignir og vexti á sparireikningum birtast sjálfkrafa á skattframtali. Með því að hætta að senda út reikningsyfirlit sparast töluverður kostnaður auk þess sparnaðar sem verður í pappírsmagni og þeirra jákvæðu áhrifa sem slíkur sparnaður hefur á umhverfið. Pappírssparnaður uppá 18,5 tonn Íslandsbanki hefur síðustu 2 ár leitað leiða til að ná fram sparnaði í rekstri og draga úr notkun pappírs í almennri starfsemi. Árið 2009 ákvað bankinn að taka upp nýtt prentkerfi fyrir starfsemi bankans, sem hefur leitt til 18,5 tonna sparnað í prentuðu magni á pappír og verulega minni rafmagnsnotkun. Samhliða þessum sparnaði er ljóst að notkun á prenthylkjum hefur minnkað gríðarlega, með tilheyrandi sparnaði og jákvæðra umhverfisáhrifa. Sú ákvörðun nú að hætta útsendingu reikningsyfirlita er hluti af þessari stefnu bankans. Þeir viðskiptavinir sem kjósa að fá send yfirlit í pósti geta pantað þau í Netbankanum undir Stillingar. Einnig geta viðskiptavinir óskað eftir yfirlitum með því að hringja í þjónustuver Íslandsbanka í síma 440 4000 eða með því að koma í næsta útibú bankans.
Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira