Viðskipti innlent

Segja nauðsynlegt að greina á milli nýja Spkef og þess gamla

Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri.
Einar Hannesson, sparisjóðsstjóri.
Ný stjórn og nýr sparisjóðsstjóri Spkef hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að nauðynlegt sé að aðgreina á milli aðila þegar fjallað er um lánveitingaákvarðanir Sparisjóðs Keflavíkur. „Þann 22. apríl 2010 var nýr sparisjóður reistur við undir merkjum Spkef sparisjóðs. Rannsókn stendur nú yfir af hálfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á gamla Sparisjóði Keflavíkur og sinnir PWC þeirri rannsókn fyrir hönd FME. Stjórn og sparisjóðsstjóri nýja Spkef telja nauðsynlegt að bíða endanlegra niðurstaðna rannsóknar FME til að fá heildarmynd af starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur áður en hægt er að fella einhverja dóma byggða á umfjöllun fjölmiðla."

Þá segir að allir hlutaðeigandi hljóti þó að telja eðlilegt að slík skoðun fari fram. „Það er mikilvægt í þeirri umræðu sem verið hefur undanfarið í fjölmiðlum að allir þeir aðilar sem til skoðunar eru vegna starfsemi gamla Sparisjóðs Keflavíkur njóti sannmælis og sanngirni. Stjórn hins nýja Spkef sparisjóðs vill taka það fram að hvorki hún né stjórnendur nýja sjóðsins eru beinir þátttakendur í þeirri rannsókn."

Hvað varðar málefni nýja Spkef sparisjóðs, sem endurreistur var og einnig hafa verið til umfjöllunar, segir stjórnin: „Þeirri endurreisn miðar vel áfram. Umtalsverð vinna hefur verið lögð í endurskipulagningu á starfsemi sparisjóðsins, á endurútreikningum á íbúðarlánum, stofnfjárlánum, erlendum lánum og endurskipulagningu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Þá hefur skipulag sjóðsins verið endurskoðað og dregið hefur verið úr kostnaði. Unnið er að því hörðum höndum að stilla upp stofnefnahagsreikning nýs sparisjóðs með það fyrir augum að leiða í ljós endurfjármögnunarþörf hans. Er þá meðtalinn skuldbinding ríkisins vegna innistæðna og mismunur á milli skulda og eigna. Áréttað skal að allar innistæður í sparisjóðum og útibúum þeirra eru að fullu tryggðar, í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þess efnis. Niðurstaða vinnunnar við endurskipulagninguna mun liggja fyrir í lok febrúar."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×