Þriggja milljarða búhnykkur 17. febrúar 2011 09:00 Loðnu dælt úr nótinni Kap VE, skip Vinnslustöðvarinnar í Eyjum, á veiðum í mars 2008. fréttablaðið/óskar
Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til 65 þúsund tonna aukningu á leyfilegum hámarksafla í loðnu. Ráðlagður heildarafli er því 390 þúsund tonn en var 325 þúsund tonn fyrir nýjustu rannsóknir og mælingar. Þetta er í annað sinn á þremur vikum að lagt er til að bæta verði við kvótann. 24. janúar var kvótinn aukinn úr 200 þúsund tonnum í 325 þúsund tonn. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur fylgst með loðnugöngum við austan- og sunnanvert landið frá 4. febrúar og með rannsóknum lagt mat á stærð veiðistofnsins. Samkvæmt þessum mælingum eru 608 þúsund tonn af kynþroska loðnu á ferðinni. Áður en ofangreind mæling fór fram er áætlað að veidd hafi verið 180 þúsund tonn af loðnu og því er áætluð stærð stofnsins, sem lögð er til grundvallar aflamarksútreikningum, 788 þúsund tonn. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, telur að 65 þúsund tonn af loðnu verði metin til rúmlega þriggja milljarða króna í útflutningsverðmætum. „Þetta er búhnykkur fyrir samfélagið.“ Hann er bjartsýnn á loðnuveiðar og vinnslu til næstu ára og útilokar ekki að stór loðnuvertíð sé skammt undan. Mælingar Hafró sýni ört batnandi ástand stofnsins sem hugsanlega taki að gæta í ráðgjöf strax á næstu vertíð. - shá
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Sjá meira