Nýi Landsbankinn hefur yfirtekið Avant 17. febrúar 2011 10:09
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest nauðasamning vegna Avant hf. Nýi Landsbankinn (NBI) yfirtekur félagið og á nú 99% hlut í því. Í tilkynningu frá Avant segir að nauðasamningurinn felur í sér eftirfarandi meginatriði: Að NBI hf. (Landsbankinn) sem stærsti kröfu- og veðréttarhafi í Avant hf. taki yfir félagið og eigi 99% hlut í því á móti 1% hlut félagsins sjálfs. Að helstu lánardrottnar félagsins fái greitt 5,6% upp í kröfur sínar. Að almennir viðskiptavinir félagsins sem eiga kröfu á félagið vegna ólögmætra tenginga samningsskuldbindinga við gengi erlendra gjaldmiðla, sbr. Hæstaréttardómana: 92, 153 og 471/2010 fái fullnustu á kröfum sínum með eftirfarandi hætti: Þar sem því verður við komið kemur inneign til lækkunar á höfuðstól eftirstöðva lánssamnings. Séu samningar uppgerðir t.d. þeim hefur verið lokað, en viðskiptavinur á kröfu á Avant hf. t.d. vegna ólögmætra samningsákvæða eins og áður sagði: Allar kröfur upp að kr. 1.000.000 greiðast að fullu. Upp í kröfur kr. 1.000.001 eða hærri greiðist 5,6% kröfufjárhæðar eða kr. 1.000.000 að vali viðskiptavina. Í hnotskurn var staða Avant hf. sú að félagið var ógjaldfært í þeim skilningi að skuldir voru verulega umfram eignir. Ef til slitameðferðar hefði komið er ólíklegt að nokkuð hefði komið upp í almennar kröfur. Veruleg hætta var á því að hinn almenni viðskiptavinur félagsins sem átti kröfur á félagið vegna ofgreiðslu fengi lítið sem ekkert upp í sínar kröfur. Með atbeina helstu kröfuhafa og þá sérstaklega Landsbankans hefur náðst nauðasamningur sem m.a. er ætlað að ná til hins almenna viðskiptavinar félagsins. Samkvæmt nauðasamningnum greiðast allar kröfur upp að 1 milljón króna að fullu og með þeim hætti er náð til yfir 90% viðskiptavina félagsins Nauðasamningurinn gerir ráð fyrir að greiðsla samkvæmt samningum verði innt af hendi eigi síðar en þann 15. mars nk. Unnið er að útreikningum og verða innborganir lagðar inn á sérstakan reikning hjá Landsbankanum á nafni hvers kröfuhafa að undangengnu bréfi þar að lútandi. Hægt verður að fá upplýsingar um greiðslurnar á heimasíðu Avant hf.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira