Svartsýniskastið frá síðasta hausti er liðin tíð 25. janúar 2011 11:47
Íslenskir neytendur eru vongóðir og bjartsýnir í upphafi nýs árs ef marka má væntingavísitölu Capacent Gallup sem birt var nú í morgun. Vísitalan sem mælir væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins hækkaði um 13,2 stig frá fyrri mánuði og stendur nú í 61,5 stigum. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að svo virðist vera sem svartsýniskastið sem landinn tók síðastliðið haust sé nú liðið hjá, en vísitalan er nú komin á svipaðan stað og um mitt síðasta sumar. Þegar að hausta tók fór svo að fjara undan bjartsýninni á nýjan leik og fór vísitalan niður í 32 stig í október.Núna virðast landsmenn hins vegar vera að jafna sig og fara tiltölulega bjartsýnir inn í nýtt ár. Á síðasta ári mældist vísitalan að meðaltali 53 stig og er því ljóst að landinn er heldur bjartsýnni nú en hann var að jafnaði á síðasta ári. Þá eru landsmenn einnig mun bjartsýnni nú heldur í upphafi síðasta árs en fyrir ári síðan var vísitalan 37,1 stig. Eins og kunnugt er mælir vístalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins, og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Tæplega 3 ár eru síðan að vísitalan fór yfir 100 stig en það var í febrúar 2008 þegar hún var 102,2 stig. Sögulegu lágmarki náði vísitalan í janúar 2009 þegar hún fór niður í 19,5 stig.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira