SpKef og Landsbankinn sameinast 5. mars 2011 16:13 Landsbankinn.
Í hádeginu var undirritaður samningur milli fjármálaráðherra og Landsbanka Íslands um yfirtöku og samruna Landsbankans við Spkef sparisjóð samkvæmt tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Þar kom fram að eigið fé bankans var neikvætt um 11,2 milljarða og samtals vantaði því 19,4 milljarða upp á að hann uppfylli kröfur FME um lágmarks eigið fé. Ríkissjóður mun ekki leggja sjóðnum til nýtt eigið fé, en nýtt eigið fé hefði þurft að nema 8,2 milljörðum króna að mati Spkef. Í tilkynningunni segir ennfremur að það sé mjög áríðandi að finna rekstri sparisjóðsins varanlegan farveg. Miðað við mat stjórnenda sparisjóðsins, sem kemur fram í bréfi dags. 25. febrúar s.l., var staða hans þannig um áramótin að eigið fé hans var neikvætt um 11,2 milljarða og samtals vantaði því 19,4 milljarða upp á að hann uppfylli kröfur FME um lágmarks eigið fé. Að auki hefur Spkef sparisjóður átt við verulegan og viðvarandi lausafjárvanda að etja og hafa viðskipti hans við Seðlabanka Íslands verið bundin skilyrðum um ábyrgð af hálfu ríkissjóðs vegna innstæðna. Af framangreindu er ljóst að rekstur og möguleikar Spkef sparisjóðs til að standa við skuldbindingar gagnvart innstæðueigendum og öðrum viðskiptamönnum er alfarið háð beinum stuðningi og ábyrgð af hálfu ríkisins. Með þessari ráðstöfun er tryggt að útgjöld ríkissjóðs vegna Spkef takmarkst við það sem á vantar að heildareignir sparisjóðsins svari til innstæðna. Ríkissjóður mun ekki leggja sjóðnum til nýtt eigið fé, en nýtt eigið fé hefði þurft að nema 8,2 ma.kr. skv. mati Spkef. Samruni Spkef sparisjóðs við NBI hf. raskar ekki uppgjöri milli Spkef sparisjóðs og fyrirrennara hans, Sparisjóðnum í Keflavík. Einnig er ljóst að samruninn hafi engin áhrif á rétt slitastjórnar Sparisjóðsins í Keflavík til aðgangs að gögnum og upplýsingum um mál sem þar eru til rannsóknar sem slitastjórnin eða aðrir kynnu síðar að vilja hefja rannsókn á. Ljóst er að samruni Spkef við Landsbankann hefur umtalsverðar breytingar í för með sér fyrir starfrækslu sparisjóðakerfisins. Bankasýsla ríkisins mun á næstu vikum eiga samráð við einstaka sparisjóði og fjármálastofnanir um málefni sparisjóðanna, en Bankasýslan undirbýr stefnumörkun varðandi framtíðarfyrirkomulag á starfsemi þeirra sparisjóða sem Bankasýslan fer með eignarhluti í. Landsbankinn hefur upplýst fjármálaráðuneytið um að hann hyggst hafa náið samráð við starfsmenn og heimaaðila á starfssvæði sparisjóðsins vegna þeirra breytinga sem nú verða. Hefur verið lögð á það áhersla af hálfu fjármálaráðherra að tekið verði ríkt tillit til atvinnu- og þjónustuhagsmuna á starfssvæði sparisjóðsins á Suðurnesjum og á norðvestanverðu landinu.
Mest lesið Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Kostar allt að 580 þúsund Neytendur Undirbúningur kólnunar: Ekki endilega best að byrja á niðurskurði Atvinnulíf Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Sjá meira