Kaupréttarkröfu frænda Björgólfs hafnað fyrir dómi 8. febrúar 2011 12:16
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað tæplega 200 milljóna kr. kaupréttarkröfu Guðmundar P. Davíðssonar í þrotabú Landsbankans. Guðmundur, sem er frændi Björgólfs Guðmundssonar fyrrum stjórnarformanns bankans, starfaði sem forstöðumaður fyrirtækjasviðs Landsbankans fram til ársins 2007. Guðmundur gerði þá kröfu að kaupréttur hans yrði dæmdur sem forgangskrafa og til vara sem almenn krafa en dómurinn hafnaði báðum þessum kröfum. Guðmundur hélt því m.a. fram til stuðnings kröfu sinni, að við starfslok hans hafi svo um samist að hann ætti að fá ,,kaupréttarsamninga að fullu uppgerða eftir að síðustu laun höfðu verið greidd, þ.e. eftir 2. mars 2008". Fyrir dóminn komu vitnin Árni Maríasson, sem gegndi stöðu forstöðumanns á viðskiptasviði varnaraðila, Þór Kristjánsson, bankaráðsmaður, Atli Atlason starfsmannastjóri varnaraðila og Sigurjón Árnason fyrrum bankastjóri. Allir báru þeir á sömu lund, að þeim væri ekki kunnugt um að samið hefði verið um annað við Guðmund en að kaupréttarsamningar þeir sem gerðir voru við hann skyldu halda gildi sínu, þótt Guðmundur hætti störfum, þrátt fyrir ákvæði 3. gr. kaupréttarsamninganna sem kveður á um að kaupréttur falli niður ef starfsmaður lætur af störfum. Ekkert ofangreindra vitna gat staðfest þá skoðun Guðmundar að hann hefði átt rétt á peningagreiðslu við starfslok, sem væri ígildi uppreiknaðs verðmætis kaupréttar samkvæmt kaupréttarsamningunum. Í dóminum segir að samkvæmt ákvæðum kaupréttarsamninganna sjálfra, og með hliðsjón af vætti framangreindra vitna, verður ekki annað ráðið en að Guðmundur hafi eignast rétt til þess að kaupa ákveðinn fjölda hlutabréfa á ákveðnu gengi og gegn ákveðnu endurgjaldi á ákveðnu tímamarki. Landsbankinn var því einungis skuldbundinn til þess að afhenda Guðmundi hlutabréf gegn greiðslu frá honum. „Hvorki er kveðið á um í samningum þessum né starfslokasamningi aðila að sóknaraðili (Guðmundur) eigi fjárkröfu á hendur varnaraðila (Landsbankinn) vegna ákvæða í kaupréttarsamningunum. Með hliðsjón af framangreindu er ekki í ljós leitt að sóknaraðili hafi, á grundvelli framangreindra kaupréttarsamninga, eignast fjárkröfu á hendur varnaraðila," segir í niðurstöðum dómsins. Framangreind niðurstaða leiðir þegar til þess að hafna verður kröfum Guðmundar, en auk þess verður ekki fram hjá því horft að sá réttur sem Guðmundur átti til þess að kaupa hlutabréf í Landsbankanum samkvæmt kaupréttarsamningunum, er niður fallinn. Sú niðurstaða er m.a. fengin í ljósi framburðar Atla Atlasonar sem gegndi stöðu starfsmannastjóra Landsbankans, en hann bar fyrir dómi að Guðmundur hefði aldrei tilkynnt, hvorki við starfslok né í annan tíma, að hann hygðist nýta sér áunninn kauprétt sinn og jafnframt boðið fram greiðslu á þeim hlutabréfum sem hann vildi kaupa. Auk þess að hafna kröfum Guðmundar var honum gert að greiða Landsbankanum 400.000 krónur í málskostnað.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Sjá meira