Vöruskiptin bötnuðu um 31 milljarð milli ára 4. febrúar 2011 09:06
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2010 fluttar út vörur fyrir 560,6 milljarða króna en inn fyrir 442,1 milljarð króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 118,6 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 87,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 31,2 milljörðum króna hagstæðari en árið áður. Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 49,6 milljarða króna og inn fyrir 36,4 milljarða króna. Vöruskiptin í desember voru því hagstæð um 13,1 milljarð króna. Í desember 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 11,6 milljarða króna á sama gengi. Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2010. Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2010 var heildarverðmæti vöruútflutnings 15,7% meiri en árið áður á föstu gengi. Iðnaðarvörur voru 55,5% alls útflutnings og er þetta þriðja árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða. Verðmæti iðnaðarvara var 31,9% meira á árinu 2010 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 39,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% meira en árið 2009. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var frystur heill fiskur og jókst útflutningur hans um 41,7% frá árinu 2009. Sala á skipum og flugvélum dróst saman á árinu. Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2010 11,3% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings voru hrá- og rekstrarvara með 32,8% hlutdeild og fjárfestingarvara með 22,9% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í hrá- og rekstrarvöru 20,2% (24,4 milljarðar), fjárfestingavöru 18,2% (15,6 milljarðar) og eldsneyti og smurolíu 16,8% (8,3 milljarðar) en samdráttur varð í innflutningi á flutningatækjum 21,9% (8,4 milljarðar).
Mest lesið Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira