Netsmellur Icelandair aftur til héraðsdóms 4. febrúar 2011 08:14
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Samkeppniseftirlitsins gegn Icelandair. Kemur málið því aftur til efnislegrar meðferðar hjá héraðsdómi. Á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins segir að forsaga málsins er að í júní 2007 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins þess efnis að með kynningu og sölu á flugfargjöldum, svokölluðum Netsmellum að upphæð 16.900 kr., sem stóðu viðskiptavinum Icelandair ehf., til boða á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar annars vegar og á flugleiðinni milli Keflavíkur og London hins vegar, hafi félagið misnotað markaðsráðandi stöðu sína og brotið gegn samkeppnislögum. Var þetta til þess fallið að veikja samkeppni frá Iceland Express. Var Icelandair gert að greiða stjórnvaldssekt að fjárhæð 130 milljónir króna í ríkissjóð. Icelandair skaut úrskurði áfrýjunarnefndar til dómstóla. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá 2. febrúar 2010 var staðfest sú niðurstöða áfrýjunarnefndar að Icelandair hafi verið markaðsráðandi stöðu og misnotað hana og þar með brotið gegn 11. gr. samkeppnislaga. Héraðsdómur taldi hins vegar brotin ekki eins alvarleg og lagt var til grundvallar í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála og felldi úr gildi sektarákvörðun áfrýjunarnefndar. Samkeppniseftirlitið taldi það ekki rétta niðurstöðu að fella niður sekt Icelandair og áfrýjaði þessum dómi héraðsdóms til Hæstaréttar. Leit eftirlitið svo á að ágallar hefðu verið málsmeðferð héraðsdóms og krafðist m.a. þess að dómur hans yrði ómerktur og málinu vísað aftur heim í hérað. Hæstiréttur hefur í dag ómerkt dóm héraðsdóms þar sem of langur tími leið á milli aðalmeðferðar í málinu og dómsuppsögu.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira