Herbalife kom mér í kvikmyndabransann 15. desember 2011 13:30 Við leiði Steins Steinarrs Margrét Hrafnsdóttir framleiðir tvær myndir á næstunni: Kill the Poet, sem eiginmaðurinn Jón Óttar leikstýrir, og svo Terra Inferma með William Hurt og Terence Stamp í stórum hlutverkum. Fréttablaðið/GVA
Fyrir tuttugu árum fluttu Margrét Hrafnsdóttir og Jón Óttar Ragnarsson til Los Angeles og settust á skólabekk í kvikmyndagerð. En það er fyrst núna að þau eru að láta drauminn rætast. „Við vorum að koma frá Kanada og London, Við byrjum á fullu að undirbúa tökur í Montréal þann 7. janúar, tökurnar hefjast í lok febrúar og svo verðum við hérlendis í mars,“ segir Margrét Hrafnsdóttir kvikmyndaframleiðandi. Hún og eiginmaður hennar, Jón Óttar Ragnarsson, eru að leggja lokahönd á undirbúning kvikmyndarinnar Kill the Poet sem fjallar um stormasamt líf Steins Steinarrs, félaga hans í Unuhúsi og samband hans við listakonurnar Louisu Matthíasdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Með aðalhlutverkin í myndinni fara þau Nick Stahl, Anita Briem og Nína Dögg Filippusdóttir. Bankahrunið setur strikMyndin hefur verið lengi í vinnslu og framleiðsla hennar hefur oft staðið tæpt. „Við vorum næstum því búin að sigla henni í örugga höfn 2007, leikararnir voru komnir og allt var klappað og klárt þegar bankahrunið varð,“ segir Margrét og bætir því við að þá hafi þau þurft að standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum. „Við þurftum að horfa raunsætt á málið, hvort við ætluðum virkilega að fara í þessa þrautagöngu, að byrja aftur fjármögnun á myndinni. Við sjáum ekki eftir þeirri ákvörðun í dag.“ Margrét er jafnframt viss um að Kill the Poet eigi meira erindi við fólk í dag en hún átti kannski fyrir hrun. Hún fjalli um listamenn sem eru að berjast fyrir lífi sínu. „Louisa og Nína Tryggvadóttir hittast til að mynda í París og flýja stríðið saman til Íslands. Þessi hópur listamanna myndast hérna út af stríðsástandi og það á svo sterkt við í dag.“ Gerir mynd með William HurtÞau hjónin eru með fleiri járn í eldinum á kvikmyndasviðinu. Margrét er hluti af framleiðendateymi spennutryllisins Terra Infirma sem skartar meðal annars stórleikaranum William Hurt í stóru hlutverki ásamt Terence Stamp. Margrét hefur lagt það til að einhverjar tökur myndarinnar fari fram hér á landi auk þess sem íslenskum leikara hefur verið boðið að leika í myndinni. „Ég kynntist þessu fólki í gegnum meðframleiðanda okkar í Kill the Poet. Um leið og maður hefur sýnt að maður getur hluti þá opnast einhverjar dyr,“ segir Margrét. Herbalife hliðarskrefiðMargrét og Jón Óttar eru kannski þekktust sem Herbalife-hjónin hér á landi. Kvikmyndagerðin hefur samt alltaf átt hug þeirra og hjarta, hún var ástæðan fyrir því að þau fluttu út. „Ég kynntist Herbalife úti árið 1996 og grunaði aldrei að þetta ætti eftir að verða svona stórt. Fyrirtækið var virt en þótti kannski ekkert sérstaklega „kúl“.“ En það átti svo sannarlega eftir að breytast, offitufaraldurinn svokallaði hefur breytt viðhorfi fólks, heilsumarkaðurinn fer sífellt stækkandi og Herbalife er nú skráð á hlutabréfamarkað í New York með David Beckham og Lionel Messi sem sína helstu talsmenn.“ Margrét segir að þau hefðu aldrei getað farið út í kvikmyndagerð af þessari stærðargráðu ef ekki hefði verið fyrir Herbalife-ævintýrið. „Okkar bakgrunnur er fyrst og fremst menning og listir. Ragnar í Smára framleiddi smjörlíki til að geta haldið uppi listamönnum. Maður verður að hafa sterkan fjárhagslegan bakgrunn til að geta lagt af stað í svona ferðalag.“ Unnið með ClintonÁrin eru orðin fimmtán í Bandaríkjunum og Margrét hefur reynt ýmislegt. Hún er dyggur stuðningsmaður Demókrataflokksins og vann náið með Hillary Clinton þegar hún reyndi að fá útnefningu flokksins til forsetaframboðs. „Hún er alveg einstök kona,“ segir Margrét um Hillary Margrét mun eyða tveimur mánuðum í að vinna við kosningabaráttu Demókrataflokksins á næsta ári en þá verða forsetakosningar og Barack Obama sækist eftir endurkjöri. Margrét segist trúa því að hann nái því takmarki. „Hann hefur kannski ekki staðið undir væntingum og að mínu mati fór hann of snemma út í þetta. En hann verður áfram forseti Bandaríkjanna því framboð Repúblikana er bara ekki beysið og komið svo langt út í hægri öfgar, nema einhver nýr og spennandi fari í framboð.“
Forsetakosningar 2012 Lífið Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Erlent Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Sjá meira