Samstarf

Traustir í fjörutíu ár

Hallsteinn Traustason bílasmiður við störf sín á Réttingarverkstæði Trausta, sem hefur veitt úrvals þjónustu og viðgerðir í 40 ár.
Hallsteinn Traustason bílasmiður við störf sín á Réttingarverkstæði Trausta, sem hefur veitt úrvals þjónustu og viðgerðir í 40 ár. Mynd/GVA
Réttingarverkstæði Trausta er á Smiðjuvegi 18 í Kópavogi.Mynd/GVA
Það er okkar hagur að gera sem best; veita trausta og persónulega þjónustu og framúrskarandi bílaviðgerðir,“ segir Hallsteinn Traustason, bílasmiður og framkvæmdastjóri Réttingarverkstæðis Trausta á Smiðjuvegi 18.

Verkstæðið er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem faðir Hallsteins, Trausti Hallsteinsson, stofnaði árið 1971. Saman standa þeir feðgar vaktina, ásamt góðu starfsfólki.

„Undirstaðan í rekstrinum er viðgerðir fyrir tryggingafélög landsins, en hingað koma líka margir inn af götunni,“ útskýrir Hallsteinn um annir verkstæðisins, sem sér um bílaréttingar, bílamálun og framrúðuskipti.

„Margir leita tilboða þótt ekki sé farið út í viðgerðir strax og í fyrsta sinn í áratugi koma bílaeigendur með farkosti sína í ryðviðgerðir, svo lengja megi lífdaga þeirra,“ segir Hallsteinn.

Hópur viðskiptavina Réttingarverkstæðis Trausta fer stækkandi ár hvert því orðsporið er gott og fólk veit að það gengur að gæðum.

„Það er enda mikilvægt að leita til fagfólks í bíliðngreinum því fæstir utan þeirra vita mikið um dugandi bílaviðgerðir og auðvelt er að gabba fólk. Sumir leita úrræða hjá svokölluðumbílskúrsköllum en sitja eftir með lélega viðgerð sem beinlínis varðar umferðaröryggi. Við hvetjum því bíleigendur til að koma til skrafs og ráðagerða, fá álit fagmanna og verðtilboð, jafnvel þótt eigandi kjósi að fresta viðgerð enn um sinn,“ segir Hallsteinn.

„Í dag keyrir fólk á mun eldri bílum en áður og mikilvægt er að koma snemma með bíla til viðgerða svo kostnaður sé viðráðanlegur. Tíminn vinnur með fólki þegar um ryðviðgerðir er að ræða og auðvelt er að bæta nýtt ryð, sem annars skemmir fljótt út frá sér. Eðlilega draga margir í lengstu lög að fara með bíla sína í viðgerð og oft gerist það ekki fyrr en bíll þarf í skoðun, en til að tryggja öryggi sitt og annarra í umferðinni þarf að láta viðgerðir ganga fyrir.“





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×