Engar biðraðir - pantaðu tíma á netinu 25. október 2011 11:00
Vaka hefur nú opnað á nýjum stað að Smiðjuvegi 28. Nú geta viðskiptavinir valið um tvö stór og öflug dekkjaverkstæði, á Smiðjuvegi og í Skútuvogi. Við höfum flutt okkur frá Smiðjuvegi 26, þar sem Hjólkó var áður til húsa, yfir á Smiðjuveg 28 og erum nú með 600 m² pláss,“ segir Róbert Hannesson, stöðvarstjóri hjá Vöku. „Starfsmenn hafa verið í óðaönn að koma öllu fyrir á nýja staðnum, en við erum strax byrjaðir að taka á móti viðskiptavinum. Hér er miklu þægilegra aðgengi og vinnuaðstaðan betri auk þess sem staðurinn er sýnilegri núna. Við stefnum svo á að auka enn frekar þjónustu við bifreiðaeigendur í framhaldinu,“ segir Róbert. Hjá Vöku er veitt öll almenn hjólbarðaþjónusta, hjólbarðasala og rekið dekkjahótel. „Við erum með mjög gott verð á hjólbörðum og á allri þjónustu og leggjum okkur fram við að bjóða topp þjónustu. Við tökum meðal annars notuð dekk upp í ný,“ segir Róbert. Hjá Vöku er hægt að fá hinar ýmsu tegundir dekkja í öllum verðflokkum. „Starfsfólk okkar kappkostar að útvega viðskiptavinum það sem vantar ef við erum ekki með það hér á lager“, bætir hann við. Viðskiptavinir geta pantað tíma á vefsíðunni vakahf.is og losnað þannig við óþarfa biðraðir. „Viðskiptavinir hafa mikið verið að nýta sér þessa nýjung og eru gríðarlega ánægðir með þessa þjónustu“ segir Róbert. „Algengt er að viðskiptavinir bóki tíma á kvöldin þegar næsti dagur er skipulagður. Sumir vilja byrja daginn á dekkjaskiptum áður en þeir fara í vinnuna og enn aðrir vilja tryggja sér tíma strax eftir vinnu,“ bætir Róbert við. Aðstaða fyrir viðskiptavini er góð á nýja staðnum og það er alltaf heitt á könnunni.
Sérblöð Mest lesið „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Atvinnulíf Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Atvinnulíf Ný forysta Félags kvenna í atvinnulífinu kjörin Viðskipti innlent X-ið hans Musk virðist liggja niðri Viðskipti erlent Högnuðust ríkulega en draga samt saman seglin í heimabyggð Viðskipti innlent Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Kallar eftir virðingu eftir tollahótanir Trump Viðskipti erlent Landsbankinn og Arion lækka vexti Neytendur Gefast upp á miðbænum: „Það er hringur eftir hring, engin bílastæði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira