Samstarf

Eina dekkjaumboðssalan á Íslandi

Valdimar Sigurjónsson er stofnandi og eigandi Dekkjasölunnar. Hann bendir á heimasíðu fyrirtækisins dekkjasalan.is, þar sem hægt er að skoða allar vörur sem eru í umboðssölu. Á síðunni kemur meðal annars fram vörulýsing, verð og myndir.
Valdimar Sigurjónsson er stofnandi og eigandi Dekkjasölunnar. Hann bendir á heimasíðu fyrirtækisins dekkjasalan.is, þar sem hægt er að skoða allar vörur sem eru í umboðssölu. Á síðunni kemur meðal annars fram vörulýsing, verð og myndir.
Dekkjasalan var stofnuð fyrir einu og hálfu ári. Fyrirtækið býður nýja þjónustu sem snýst um að fólk sem á dekk og/eða felgur sem það hefur ekki not fyrir getur komið með vöruna í Dekkjasöluna, þar sem gerður er umboðssölusamningur. Dekkjasalan auglýsir vöruna, selur og leggur andvirðið að frádregnum sölulaunum inn á reikning viðkomandi.

Verðlagningin er í höndum eiganda dekkja, starfsmenn Dekkjasölunnar leiðbeina einungis hvað sambærilegar vörur eru að seljast á. Sumir vilja verðleggja lágt til að flýta fyrir sölu. Fyrsta skrefið hjá kaupendum dekkja er því að athuga hvort réttu dekkin séu til hjá Dekkjasölunni og spara sér töluverða fjárhæð.

Öryggi þeirra sem kjósa að versla hagkvæmt á notaða markaðnum eykst á skipulögðum markaði sem þessum. Farið er yfir allar vörur þegar þær koma inn og veittur er sjö daga skilafrestur ef vara reynist gölluð. Einnig má benda á að þar sem allar vörur eru skráðar lágmarkast hættan á því að verslað sé með þýfi.

Að sögn starfsmanna Dekkjasölunnar hefur þetta framtak mælst vel fyrir og margir látið í ljós ánægju með að kominn sé skipulagður markaður með vörur sem þessar. Dæmi eru um að fólk hafi komið með 20 til 30 dekk í sölu þegar verið er að taka til í bílskúrnum. Er fólki bent á að henda ekki dekkjum án þess að koma við hjá okkur og fara yfir hvort eitthvað sé nothæft. Ekki má gleyma umhverfisþættinum sem felst í því að nýta dekk til fullnustu.

Einnig má geta þess að á staðnum eru um 600 stök dekk sem passa inn í ganga ef eitt skemmist. Allt er skráð og það tekur skamma stund að sjá hvort vara sé til.

Dekkjasalan heldur úti öflugri heimasíðu www.dekkjasalan.is þar sem hægt er að skoða allar vörur sem eru í umboðssölu. Á síðunni kemur m.a. fram vörulýsing, verð og myndir. Allar vörur á heimasíðunni eru í vöruhúsi fyrirtækisins að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði.

Þegar ekki eru til notuð dekk í þeim stærðum sem fólk vantar getur Dekkjasalan útvegað ný á samkeppnishæfu verði. Á Dekkjasölunni er einnig séð um viðgerðir, umfelgun, neglingu og fleira sem dekkjum viðkemur á sanngjörnu verði. Það er heitt á könnunni og allir í góðu skapi.

Dekkjasalan er opin frá klukkan 8 til 18 virka daga, til klukkan 21 þriðjudaga og fimmtudaga og frá klukkan 10 til 16 laugardaga.

http://www.dekkjasalan.is/





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×