Samstarf

Dekkin skipta öllu máli í umferðinni

"Við leggjum áherslu á að bjóða betri dekk á lægra verði,” segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar.
"Við leggjum áherslu á að bjóða betri dekk á lægra verði,” segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar.
Dekkjahöllin er yfir 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki með hjólbarða- og smurstöðvar í Skeifunni 5, Reykjavík og einnig á Akureyri og Egilsstöðum. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá því það var stofnað á Akureyri en allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á snögga og góða þjónustu og að bjóða upp á mikið úrval dekkja á góðu verði.

Dekk á betra verði

Í dag er Dekkjahöllin með dekkjaumboð frá mörgum úrvals framleiðendum, svo sem japanska framleiðandanum Yokohama og Marangoni á Ítalíu. Einnig er fyrirtækið í samstarfi við TBC, sem er einn stærsti söluaðili dekkja í Bandaríkjunum, um sölu á vetrardekkjum. Þau dekk eru meðal annars framleidd af Cooper og Sailun. Dekkjahöllin hefur með þeim hætti skapað grundvöll til að bjóða enn hagstæðara verð en áður þekkist.

„Við leggjum áherslu á að bjóða betri dekk á lægra verði. Með magninnkaupum og staðgreiðslu, þá náum við bestu fáanlegu innkaupsverðunum og getum því selt dekkin á betra verði en annars," segir Elín Dögg Gunnarsdóttir, rekstrarstjóri Dekkjahallarinnar og jafnframt dóttir stofnanda fyrirtækisins.

„Eftir að kreppan skall á hefur almenningur lagt enn meiri áherslu á verð og höfum við notið mikillar velvildar fyrir vikið og viðskiptavinum hefur fjölgað svo um munar. Ég get því sagt að kreppan hefur ekki haft neitt nema góð áhrif á okkur. Við höfum til að mynda sömu kennitöluna frá upphafi og njótum því mikils trausts bæði hjá viðskiptavinum og birgjum."



Val á vetrardekkjum mikilvægt

Fólk á Íslandi keyrir við margvíslegar og oft erfiðar vetraraðstæður og því eru starfsmenn Dekkjahallarinnar markvisst þjálfaðir og hafa mikla reynslu til að veita faglega ráðgjöf við val á hjólbörðum. Með miklu úrvali er hægt að koma til móts við mismunandi þarfir viðskiptavina, segir Elín Dögg og vill einnig koma á framfæri að hægt sé hringja eða að senda inn fyrirspurn í gegnum vefinn dekkjahollin.is til að fá uppgefið verð á mismunandi stærðum og gerðum dekkja.

Fyrirspurnum er í flestum tilvikum svarað samdægurs svo það ætti enginn að fara á sumardekkjunum út í vetrarfærðina.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×