Samstarf

Óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum

Húsnæðiskaup eru í flestum tilvikum stærsta fjárfesting einstaklinga og að mörgu að hyggja þegar taka skal íbúðalán.
Húsnæðiskaup eru í flestum tilvikum stærsta fjárfesting einstaklinga og að mörgu að hyggja þegar taka skal íbúðalán. Mynd/Gassi
Arion banki hefur frá miðjum september boðið viðskiptavinum sínum þá nýjung að geta tekið óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára með föstum vöxtum í fimm ár. Fram til þessa hafa flest húsnæðislán verið verðtryggð og hefur takmarkað framboð af óverðtryggðum lánum oft verið gagnrýnt.

Vextir nýju lánanna eru bundnir í fimm ár og í lok vaxtatímabilsins eru þeir endurskoðaðir og munu taka mið af markaðsvöxtum á þeim tíma. Ef lántaka líst ekki á þá vexti sem honum standa þá til boða, getur hann valið milli annarra kosta. Hann getur breytt láninu í verðtryggt lán, annað óverðtryggt lánsform ef það er hagstæðara, eða greitt lánið upp án sérstaks uppgreiðslugjalds.

Til að svara spurningunni hvort ráðlegra sé að taka óverðtryggt lán en verðtryggt þarf að mynda sér skoðun á því hvernig líklegast sé að verðbólga og vextir þróist á lánstímanum. Afar erfitt er að spá fyrir um þróun verðbólgu en gagnlegt er að leggja saman áætlaða verðbólgu og vexti verðtryggðs láns. Ef útkoman er lægri en vextir óverðtryggðs láns er að öðru óbreyttu skynsamlegt að velja verðtryggt lán. Sé útkoman hins vegar hærri getur verið skynsamlegt að velja óverðtryggt lán.

Hafa ber í huga að greiðslubyrði óverðtryggðra lána er að öllu jöfnu þyngri en verðtryggðra lána, en á móti kemur að eftirstöðvar óverðtryggðu lánanna lækka hraðar en verðtryggðu lánanna og eignamyndun er því örari.

Miklu skiptir að taka upplýsta ákvörðun um val á íbúðaláni þar sem húsnæðiskaup eru í flestum tilvikum stærsta fjárfesting einstaklinga. Því er mikilvægt að ákvörðunin sé byggð á réttum forsendum og taki mið af persónulegum þörfum hvers og eins.



Ráðgjöf og aðstoð í útibúum

Í útibúum Arion banka býðst ráðgjöf og aðstoð varðandi allt sem snýr að fjármálum heimilanna, svo sem lántöku, sparnaði og fjármálaráðgjöf almennt. Á vef bankans, www.arionbanki.is, má nálgast ýmsar hagnýtar upplýsingar um lán og annað sem tengist íbúðakaupum. Til að mynda má sjá mælaborð fasteignamarkaðarins sem dregur fram ýmsar áhugaverðar upplýsingar, eins og þróun á íbúðaverði, íbúðaverð eftir landshlutum og ýmislegt fleira. Upplýsingarnar byggja á opinberum gögnum sem tekin eru saman af Datamarket.



Samstarf við stofnun um fjármálalæsi

Undanfarin ár hefur Arion banki staðið fyrir fræðsluátaki og verið aðalbakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi sem beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi Íslendinga. Breki Karlsson er forstöðumaður stofnunarinnar og stýrir fræðsluátaki Arion banka ásamt sérfræðingum bankans.

Arion banki býður viðskiptavinum sínum að sækja fræðslu- og kynningarfundi um fjölbreytileg viðfangsefni sem snerta fjármálalæsi og fjármál heimilanna. Meðal annars er fjallað almennt um fjármál, um óverðtryggð íbúðalán og heimilisbókhaldið Meniga svo fátt eitt sé nefnt. Fræðsluefni, t.a.m. stutt fræðslumyndbönd, má nálgast á síðunni arionbanki.is/fraedsla.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×