Samstarf

Látlaust eldist oftast best

Birgir Þórarinsson er framkvæmdastjóri Birgisson.
Birgir Þórarinsson er framkvæmdastjóri Birgisson. Mynd/Vilhelm
Það borgar sig að vanda valið og velja úrvalsvörur. Látlaust og hlutlaust parket eldist oftast best," segir Birgir Þórarinsson, eigandi Birgisson í Ármúla 8. Hann er búinn að vera í bransanum í yfir þrjátíu ár og veit hvað hann syngur. Nú eru synir hans komnir í slaginn með honum.

„Við byggjum á mikilli reynslu og erum með umboð fyrir þekkta framleiðendur í parketi, flísum og hurðum." Birgir tekur fram að Birgisson leggi áherslu á að bjóða úrvalsvöru á hagstæðu verði.

Birgir hefur verið umboðsmaður fyrir sænska parketframleiðandann Kährs í 25 ár.

„Búið er að selja yfir eina milljón fermetra af Kährs-parketi á Íslandi og það segir sína sögu um gæðin. Allir fagmenn þekkja það, enda hentar það vel íslenskum aðstæðum. Hér á landi eru nefnilega mjög öfgakenndar aðstæður. Við kyndum húsin mikið og rakastig í íbúðum getur verið mjög lágt. Þetta þurfum við að hafa í huga þegar við veljum parket."

Eikin er langeftirsóttust í parketi og hefur verið frá upphafi, að sögn Birgis. „Markaðurinn vill náttúrulegt útlit á okkar tímum. Burstuð, hvíttuð og grábæsuð eik er vinsæl núna," segir hann. Tekur líka fram að undirlag undir parket þurfi að vera hljóðeinangrandi, bæði til að hljóð berist ekki milli hæða og endurkastist ekki um híbýlin. „Með því að vera með gott undirlag undir parketinu verður það líka höggþolnara, því að það gefur eftir."

Þótt Birgisson sé nýtt fyrirtæki byggir það á gömlum grunni. „Starfsmennirnir eru allir með mikla reynslu og þekkingu þannig að það er ekki komið að kofunum tómum hér," segir Birgir. „Við leggjum áherslu á að veita vandaða og góða þjónustu."

Stórar flísar - glæsilegt útlit
Þorbjörn Guðmundsson í flísadeildinni.Mynd/Vilhelm
Notkun gólfflísa hefur aukist á seinni árum að sögn Birgis í Birgisson. „Fólk notar flísarnar með parketi, þær eru settar á fleti sem mæðir á, eins og eldhús, hol og forstofur og auðvitað á baðherbergin. Stórar flísar njóta vinsælda núna. Þær gefa „grand" útlit," segir hann og nefnir flísar í stærðunum 80X80 og 45X90 og allt upp í 60X120.

Agrob-Buchtal er vinsælt vörumerki í flísum. Einnig Casa Dolce Casa sem Birgir segir arkitekta sérlega hrifna af.

„Við ráðleggjum eindregið gegnheilar gólfflísar," segir Birgir. „Framleiðendur eru komnir upp á gott lag með að steypa flísar sem líkjast mjög náttúrulegum steinflísum en þurfa minni meðhöndlun. Þær eru léttar í daglegum þrifum," segir hann og bendir á að dökk fúga sé einnig hentugri en ljós vegna þrifa. Hann segir mikilvægt að huga að rakadrægni flísa sem ætlaðar séu í sturtur. En hvaða litir eru vinsælastir? „Nú er grátt og beis algengast í gólfflísum og hvítar veggflísar í baðherbergi í mismunandi stærðum," segir Birgir. „Arkitektarnir velja oftast stílhreinar flísar enda koma þær flottast út."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×