Hagnaður bankans jókst um 160 prósent 15. september 2011 03:15 Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, kynnti uppgjör bankans ásamt þremur öðrum stjórnendum.Fréttablaðið/pjetur „
Við erum vongóð um að við séum komin á réttan stað,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Bankinn hagnaðist um 24,4 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 9,4 milljörðum. Munurinn skýrist að mestu af gengishagnaði hlutabréfa í eigu dótturfélagsins Horns og sölu á Vestia ásamt eignum til Framtakssjóðs Íslands. Að þessu undanskildu nam hagnaðurinn 10,7 milljörðum króna, sem er nokkurn veginn á pari við hina stóru bankana. Hreinar rekstrartekjur bankans námu 31 milljarði króna á tímabilinu, samanborið við 18,4 milljarða á sama tíma í fyrra. Heildareignir jukust um 45 milljarða króna og námu lausafjáreignir 234 milljörðum króna í lok júní. Steinþór segir fjárhagsstöðu bankans sterka og vilji hann lána meira. Það sé hins vegar erfitt þar sem eftirspurn eftir lánsfé sé ekki mikil. Landsbankinn hefur klárað það svigrúm sem hann fékk við tilfærslu eigna gamla bankans yfir í þann nýja til að lækka skuldir einstaklinga. Hann verður nú að greiða fyrir lækkun skulda einstaklinga úr eigin sjóðum. - jab
Fréttir Mest lesið Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Viðskipti innlent Gagnrýna seinagang olíufélaganna og ýja að samráði Neytendur Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Viðskipti innlent Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Viðskipti innlent Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Viðskipti innlent Forstjóri Kaldvíkur látinn af störfum í samráði við stjórn Viðskipti innlent Borið á kvörtunum undan leigubílstjórum Neytendur Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Viðskipti innlent Sögulegur hagnaður á samrunatímum Viðskipti innlent Stækka hótelveldið á Suðurlandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri Kaldvíkur látinn af störfum í samráði við stjórn Fríhöfnin endurhönnuð í anda íslenskrar náttúru Gervigreindin geti verið lykillinn að tollalækkun Besti fjórðungurinn í sögu Alvotech Sögulegur hagnaður á samrunatímum Óskar úr fjarskiptum í fiskinn Hætt sem framkvæmdastjóri Klíníkurinnar Lægri tollar á samkeppnisríkin veiki stöðuna svo um munar Atvinnuleysi eykst hægt með lækkandi sól Almannatenglar stofna fjölmiðil Lánshæfið hækkar úr stöðugu í jákvætt Fleiri ferðamenn og fleiri utanlandsferðir Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Stækka hótelveldið á Suðurlandi Óskar eftir starfslokum „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Sjá meira