Innlent

Nafnið fylgdi kannabisleifum

Mynd/RR
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði þrjú ungmenni í bíl aðfaranótt föstudagsins. Fólkið var að koma úr Heiðmörk og fann lögreglan kannabislykt í bílnum. Ekkert saknæmt fannst við leit.

Skömmu síðar fann lögreglan bréf í vegkantinum með leifum af kannabis. Bréfið var tölvupóstur þar sem á stóð nafn ökumannsins. Lögreglan beið því heima hjá manninum þegar hann renndi í hlað og var hann tekinn höndum. Þvagprufa leiddi í ljós að hann hafði neytt kannabisefna. - sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×