Heildarvelta í atvinnulífinu stóð í stað milli ára í haust 19. janúar 2011 12:16
Heildarvelta í atvinnulífinu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum stóð nánast í stað í krónum talið í september og október síðastliðnum samanborið við sama tímabil árið 2009. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig nam heildarveltan í september og október síðastliðnum 459,8 milljörðum kr. en var á sama tíma árið á undan 459,6 milljörðum kr. Það gefur því auga leið að veltan hafi dregist saman á þessu tímabili að teknu tilliti til verðlagsbreytinga, og nam raunbreytingin 3,3% samdrætti, ef miðað er við þróun vísitölu neysluverðs. Þrátt fyrir þessar tölur var heildarveltan í atvinnulífinu um 8,5% meiri að nafnvirði á fyrstu tíu mánuðunum síðasta árs samanborið við sama tíma árið 2009 og að raunvirði nam aukningin 2,5%. Skýrist sú aukning einkum af fyrri helmingi ársins, en þá varð 6,0% aukning að raunvirði á veltunni m.v. sama tíma árið 2009 en á tímabilinu frá júlí til og með október dróst hún saman um 2,1%. Þetta má sjá í tölum yfir veltu fyrirtækja samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem Hagstofan birti nú í morgun. Af tölum Hagstofunnar má sjá hversu ólík þróun veltu er í hinum ýmsu atvinnugreinum, sem er til marks um hversu misjöfn efnahagsleg skilyrði íslensk fyrirtæki búa við um þessar mundir. Þannig er enn mjög mikill samdráttur í mörgum greinum atvinnulífsins, og þá einna helst þeim sem tengjast innlendri eftirspurn. Ljóst er að samdrátturinn er enn verulegur í fyrirtækjum sem eru í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, en eins og kunnugt er hefur veltan dregist linnulaust saman í þessum greinum síðan um mitt árið 2008. Samdrátturinn á fyrstu tíu mánuðum síðastliðins árs nam ríflega 23% að raungildi. Jafnframt gætir enn samdráttar í öðrum greinum tengdum einkaneyslu eins og bílasölu en þó var samdrátturinn þar til muna minni en í byggingarstarfsemi á þessu tímabili, eða um 1,6% að raungildi. Á hinn bóginn er velta í útflutningsgreinum ágæt og er nokkuð ljóst að þær greinar sem heyra undir útflutning eru í annarri stöðu en þær sem háðar eru innlendri eftirspurn. Þannig hefur veltan í framleiðslu málma aukist um ríflega 28% að raunvirði á fyrstu tíu mánuðum ársins samanborið við sama tíma árið 2009. Á sama tímabili jókst veltan í fiskveiðum um tæplega 6% og veltan í matvæla- og drykkjavöruiðnaði, sem nær yfir bæði landvinnslu sjávarfangs og matvöruframleiðslu til innlendrar neyslu, aukist um tæp 3%. Jafnframt hefur veltan í flugsamgöngum náð sér á strik eftir þær náttúrhamfarir sem áttu sér stað á fyrri hluta árs 2010, en hún hafði aukist um 2,1% á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 m.v. sama tímabil 2009.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira