Kvótabreyting gæti skekkt bankakerfið Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar 6. apríl 2011 13:00 Áhættuskýrslan kynnt. Sverrir Þorvaldsson segir innköllun á aflaheimildum sjávarútvegsfyrirtækja geta haft töluverð áhrif á bankakerfið. Mynd/GVA
Ólíklegt er að stjórnvöld samþykki innköllun aflaheimilda á tuttugu árum. Slíkt getur leitt til gjaldþrots þeirra fyrirtækja í sjávarútvegi sem ráða yfir allt að helmingi af aflaheimildum og haft mjög neikvæð áhrif á bankakerfið. „Við viljum vekja athygli á því að verðmæti eigna í sjávarútvegi er háð aflahæfi. Í sjálfu sér leggjum við ekki mat á bein áhrif, en þau gætu orðið töluverð,“ segir Sverrir Örn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Íslandsbanka. Hann kynnti í gær sérstaka áhættuskýrslu þar sem farið var yfir helstu áhættuþætti í starfsemi bankans. Markmiðið með skýrslunni er að auka gagnsæi, uppfylla kröfur regluverksins um upplýsingagjöf, gefa betri innsýn í áhættu í rekstri bankans og eiginfjárstöðu hans. Nokkrir erlendir bankar hafa birt skýrslur sem þessar en Íslandsbanki er fyrstur banka hér á landi til þess. Í skýrslunni vitnar Íslandsbanki til greinargerðar Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri frá maí í fyrra þar sem farið var yfir áhrif innköllunar aflaheimilda á stöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja. Fram kemur í greinargerðinni, sem unnin var fyrir starfshóp sem skipaður var af sjávarútvegsráðherra til að endurskoða fyrirkomulag fiskveiðistjórnunarinnar, að heildarskuldir sjávarútvegsfyrirtækja hafi numið 465 milljörðum króna í árslok 2008. Þá segir að þau fyrirtæki sem hafi yfir að ráða 45 til 50 prósentum af aflaheimildum séu í erfiðri stöðu. Félög með aðeins átta til tólf prósent aflaheimilda voru hins vegar í góðri stöðu. Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja gagnvart viðskiptabönkunum þremur námu 257 milljörðum króna í lok síðasta árs, samkvæmt ársreikningum þeirra. Landsbankinn ber mestar byrðar, 137 milljarða króna. Lánveitingar Íslandsbanka nema 68 milljörðum. „Við erum með töluvert eigið fé til að takast á við þetta, 142 milljarða, sem samsvarar 26,6 prósenta eiginfjárhlutfalli, langt umfram þau viðmið sem Fjármálaeftirlitið hefur sett. En ef sjávarútvegsfyrirtæki munu í stórum stíl ekki ráða við skuldir sínar þá kemur það við bankakerfið,” segir Sverrir.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira