Actavis í 32 milljarða pólskri einakvæðingu 4. mars 2011 04:00 Guðbjörg Edda Eggertsdóttir Actavis hefur augastað á pólsku ríkislyfjafyrirtæki.Fréttablaðið/Valli
Actavis er á meðal fjögurra lyfjafyrirtækja sem valin hafa verið til að taka þátt í einkavæðingu pólska ríkislyfjafyrirtækisins Polfa Warszawa. Áætlað kaupverð er tvö hundruð milljónir evra, 32 milljarðar íslenskra króna. Einkavæðing pólskra stjórnvalda hefur staðið yfir um nokkurra ára skeið en áætlanir dregist. Stjórnvöld ytra áætla nú að selja 740 ríkisfyrirtæki á þessu ári og er Polfa Warszawa eitt af ellefu ríkisfyrirtækjum í lyfjageiranum sem átti að selja árið 2009. „Þetta yrði mjög góð sameining," segir Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis hér á landi. Polfa Warszawa framleiðir um 150 samheitalyf, þar af tvö sömu gerðar og Actavis selur í Póllandi. Polfa Warszawa hefur markað sér sess innan heilbrigðisgeirans í Póllandi og er sterkt í framleiðslu á lykjum, lyfjum í svokölluðum ampúlum. Starfsmenn eru 1.300 talsins og vinna þeir í þremur verksmiðjum í Póllandi. Guðbjörg segir tilboðsferlið er liður í áætlunum Actavis að kaupa lyfjafyrirtæki í Austur-Evrópu fyrir fjögur til fimm hundruð milljónir evra, eins og Claudio Albrecht, forstjóri Actavis, boðaði í síðasta mánuði. Áreiðanleikakönnun stendur yfir og verða tilboð í Polfa Warszawa lögð fram um miðjan apríl. Ef af þessu verður er um að ræða fyrstu fyrirtækjakaup Actavis frá því fyrir hrunið haustið 2008. - jab
Mest lesið Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira