Viðskipti innlent

Lánastofnanir á leigumarkað

Samráðshópur velferðarráðuneytisins vinnur að endurskipulagningu húsnæðismarkaðsins.Fréttablaðið/Pjetur
Samráðshópur velferðarráðuneytisins vinnur að endurskipulagningu húsnæðismarkaðsins.Fréttablaðið/Pjetur
Verið er að kanna hvort leigja eigi út þær tvö þúsund íbúðir sem eru í eigu lífeyrissjóða, banka og annarra lánastofnana í gegnum fasteignafélög sem starfrækt yrðu á leigumarkaði.

Samráðshópur á vegum velferðarráðuneytisins hefur átt í viðræðum við lífeyrissjóði, sveitarfélög og lánastofnanir um aðkomu þeirra að slíkum félögum.

„Flestir eru sammála um að það þurfi að efla almennan leigumarkað. Lífeyrissjóðirnir eru opnir fyrir þessu. En þeirra fjárfestingar verða eðlilega að skila lágmarksarðsemi," segir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona Samfylkingarinnar og formaður hópsins.

Sigríður segir að öflugri leigumarkaður geti haft jákvæð áhrif víða í þjóðfélaginu. Það gæti meðal annars unnið gegn bólumyndun á fasteignamarkaði, auk þess sem meiri sveigjanleiki í húsnæðismálum geti verið hagkvæmur fyrir atvinnu- og efnahagslíf. Leigumarkaðurinn eigi þá að vera raunhæfur valkostur, óháð aðstæðum.

„Séreignarstefnan hefur lengi verið ríkjandi viðhorf en ekki bara vegna þess að fólki finnist betra að eiga íbúð, heldur líka til að njóta öryggis og stöðugleika," segir hún.

Kerfi húsaleigubóta og vaxtabóta eru þess eðlis að almenningur er beinlínis hvattur til húsnæðiskaupa, að mati Sigríðar. „Að mínu mati er ekki fært að efla leigumarkað en viðhalda þessum mismun á milli kerfa," segir hún.

Samráðshópurinn, sem er meðal annars skipaður fulltrúum stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og lífeyrissjóða, mun leggja fram tillögur sínar 1. apríl. - þj , sv

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×