Seðlabankastjóri: Vonum það besta og búum okkur undir það versta Hugrún Halldórsdóttir skrifar 20. apríl 2011 18:45
Seðlabankinn spáir nú minni hagvexti á næstu tveimur árum og meiri óvissu en fyrri spár bankans gerðu ráð fyrir. Það má segja að hið nýútgefna rit boði allt annað en betri tíð. Bankinn gerir ráð fyrir að vöxtur landsframleiðslu verði minni í ár en spáð var fyrir í febrúar og er hagvaxtarspá næstu tveggja ára lakari en gert var ráð fyrir. Þá er telur bankinn að hætta sé á að niðurstaða atkvæðagreiðslunnar um Icesave geti dregið enn frekar úr hagvexti. Verðbólga hefur aukist undanfarna tvo mánuði sem skýrist einkum af lægra gengi krónunnar og nýlegum verðhækkunum hrá- og olíuvöru. Þó er gert ráð fyrir að þessar hækkanir verði tímabundnar og eigi ekki eftir að koma til með að hafa viðvarandi áhrif á langtímaverðbólguvæntingar, launa- og verðmyndun. Hins vegar virðast launahækkanir sem felast í fyrirliggjandi drögum að kjarasamningum meiri en samræmist verðbólgumarkmið bankans til lengri tíma litið. Alþjóðlegu matsfyrirtækin munu fljótlega taka ákvörðun um lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins en hún kann að takmarka svigrúm peningastefnunefndarinnar á næstu misserum. Niðurstaðan gæti einnig hægt á losun gjaldeyrishaftanna en hins vegar dregur það úr neikvæðum áhrifum að ekki er líklegt að efnahagsáætlunin með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum raskist. Már Guðmundsson seðlabankastjóri var bjartsýnn í lok fundar bankans í morgun og sagði að þó að fyrirtækin lækkuðu lánshæfismat Íslands niður í spákaupmennskuflokk með stöðugum horfum, sem er alls ekki víst að þau gera, þá þurfi ekki mikið, ef rétt er haldið á hlutunum, til þess að fá horfurnar í jákvæðar. „Við skulum bara vona það besta og búa okkur undir það versta. Það er helsti lærdómur hrunsins," sagði Már.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Anna Lísa til Aton Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Sjá meira