Segir Sigurjón hafa lagst gegn bankasameiningum Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2011 11:13 Björgólfur Thor Björgólfsson segist ekki hafa verið skuggastjórnandi.
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, lagðist gegn sameiningu bankans við tvo banka. Þetta kemur fram í færslu á vef Björgólfs Thors Björgólfssonar. Um var að ræða annars vegar sænska bankann Carnegie og hins vegar Straum. Björgólfur bendir á þetta með vísan til þess að bankastjórar Landsbankans hafi tekið ákvarðanir með hagsmuni Landsbankans í huga en ekki til þess að þóknast hluthöfum bankans. Hann sjálfur hafi ekki verið skuggastjórnandi í bankanum. Björgólfur segir að Sigurjóni hafi ekki hugnast sameining við Carnegie, en sá banki varð að stærstum hluta í eigum Landsbankans árið 2005. „Slík sameining hefði mögulega ógnað stöðu Sigurjóns sem aðalbankastjóra og kann það að útskýra afstöðu hans að hluta en einnig ber að virða það að honum þótti sænski bankinn of dýru verði keyptur," segir Björgólfur Thor á vefnum. Hann segir að sameiningarhugmyndin hafi hins vegar horfið úr sögunni eftir að Landsbankinn seldi hlut sinn í Carnegie. Björgólfur segir að Sigurjóni hafi heldur ekki hugnast hugmyndir um sameiningu Landsbankans og Straums. „Eins lagðist Sigurjón ávallt gegn hugmyndum um sameiningu Landsbankans við Straum sem Björgólfur Thor hélt talsvert á lofti en William Fall, forstjóri Straums, hefði alltaf orðið aðalbankastjóri sameinaðs banka og því yfirmaður Sigurjóns," segir Björgólfur.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira