Jólin

Jólalög og aðrar perlur

Aðstandendur Caritas-tónleikanna. Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Sigríður Ingvarsdóttir.
fréttablaðið/GVA
Aðstandendur Caritas-tónleikanna. Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar Kvaran, Jóhann Friðgeir Valdimarsson og Sigríður Ingvarsdóttir. fréttablaðið/GVA
Styrktartónleikar Caritas verða haldnir í Kristskirkju á sunnudaginn.

Tónleikarnir eru árlegur viðburður, en þetta er í nítjánda sinn sem þeir eru haldnir í Kristskirkju í aðdraganda jóla. „Þetta hefur gengið mjög vel frá byrjun,“ segir Sigríður Ingvarsdóttir, sem staðið hefur fyrir tónleikunum frá upphafi.

Allur ágóði rennur til Mæðrastyrksnefndar í ár. „Við höfum alltaf safnað fyrir einhverja sem minna mega sín og þetta er í þriðja sinn sem við styrkjum Mæðrastyrksnefnd.“

„Margir sækja tónleikana ár eftir ár til að njóta fallegrar tónlistar og leggja góðu málefni lið,“ segir Sigríður.

Efnisskráin spannar vítt svið, en leikin verður jólatónlist í bland við aðra hátíðlega tónlist. Á efnisskránni eru meðal annars verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Mozart, Bach, Händel, Verdi og Schubert.

Meðal flytjenda eru Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Helga Rós Indriðadóttir sópran. Vox Feminae og Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur koma einnig fram og sömuleiðis Gunnar Kvaran sellóleikari.

Forsala aðgöngumiða er á midi.is en miðar verða einnig seldir við innganginn.

Tónleikarnir verða í Kristskirkju við Landakot sunnudaginn 20. nóvember og hefjast þeir klukkan 16.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×