IFS greining spáir 1,7% verðbólgu í febrúar 17. febrúar 2011 10:35
Verðbólguspá IFS greiningar fyrir febrúar hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 1%. Til samanburðar var hækkun vísitölunnar 1,15% (13,8% á ársgrundvelli) í febrúar 2010. Ef spáin gengur eftir, mun 12 mánaða verðbólga mælast 1,7%. Í tilkynningu segir að verðbólga undanfarna þrjá mánuði á ársgrundvelli hækkar úr -2% í 1,7%. Hagstofan mældi vísitölu neysluverðs í síðustu viku en niðurstöðurnar verða birtar miðvikudaginn 24. febrúar n.k. Föt og skór lækkuðu um 10% í janúar sem hafði áhrif á vísitölu neysluverðs um 0,66% til lækkunar. Útsölum er að mestu leyti lokið og reiknum við með að stór hluti útsöluáhrifanna gangi til baka í febrúar (vísitöluáhrif: +0,57%). Samkvæmt gögnum Þjóðskrár hefur fermetraverð lækkað um 0,7% síðustu þrjá mánuði, aðallega vegna mikillar lækkunar í desember (vísitöluáhrif: -0,08). Verð á bensíni hefur hækkað um 1,89% og dísel um 1,37% frá síðustu mælingu (samtals vísitöluáhrif: +0,12). Flugfargjöld í utanlandsflugi lækkuðu um 15% í janúar og gerum við ráð fyrir að sú lækkun gangi til baka að hluta (vísitöluáhrif: +0,06). Mánaðarleg verðmæling IFS bendir til 1,7% hækkunar á verði matarkörfunnar (vísitöluáhrif: +0,27%) eftir að hafa hækkað um 1,4% í janúar. Mæling á verði matarkörfunnar er framkvæmd á ákveðnum vörum sem nær ávallt eru til sölu og svo virðist sem að þær hafi hækkað í verði frá því í desember. „Við gerum ráð fyrir að afgangurinn af útsöluáhrifunum gangi til baka í mars og að verðbólgan verði um 0,4%. Í apríl er lítill sjáanlegur verðbólguþrýstingur en við reiknum með um 0,2% verðbólgu þá," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira