Viðskipti innlent

Vísitala byggingarkostnaðar hækkar

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan janúar 2011 er 101,4 stig sem er hækkun um 0,6% frá fyrri mánuði.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar, Þar segir að innlent efni hækkar í verði um 2,3% (áhrif á vísitölu 0,9%) en verð á innfluttu efni lækkar um 0,6% (-0,2%). Launakostnaður lækkar um 0,8% (-0,2%) og kostnaður vegna véla, flutninga og orkunotkunar hækkar um 1,8% (0,1%). Vísitalan gildir í febrúar 2011.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 0,3%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×