Seðlabankanum heimilt að yfirtaka Greiðsluveituna hf. 28. janúar 2011 13:50
Samkeppniseftirlitið hefur með ákvörðun sinni í dag heimilað yfirtöku Seðlabanka Íslands á Fjölgreiðslumiðlun hf. (nú Greiðsluveitunni hf.) Eru yfirtökunni þó sett ýmis skilyrði. Í tilkynningu segir að Fjölgreiðslumiðlun var áður í eigu flestra viðskiptabanka og sparisjóða landsins auk Valitors hf., Borgunar hf. og Seðlabanka Íslands. Kaup Seðlabanka Íslands á öllu hlutafé fyrri meðeigenda fela í sér samruna í skilningi 17. gr. samkeppnislaga. Eftir breytingar heitir félagið Greiðsluveitan hf. Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan muni í aðalatriðum hafa jákvæð samkeppnisleg áhrif á markaði fyrir greiðslumiðlun og greiðslujöfnun á Íslandi, en Greiðsluveitan mun m.a. reka kerfi sem annast jöfnun greiðslufyrirmæla og rafræna greiðslurás fyrir notkun greiðslukorta á Íslandi (RÁS-kerfið). Jafnframt mun Greiðsluveitan reka ýmsa mikilvæga starfsemi á þessu sviði. Fyrir liggur að þessi starfsemi er mjög mikilvæg og nauðsynleg fyrir almenna fjármálastarfsemi og verður því að tryggja að allir rekstraraðilar, bæði núverandi og nýir, geti tengst þessum kerfum og notið þjónustu þeirra. Verður sá aðgangur að vera gagnsær og að öllu leyti á grundvelli jafnræðis og málefnalegra forsendna og skilyrða. Með hliðsjón af stöðu Greiðsluveitunnar á skilgreindum mörkuðum þessa máls og allra aðstæðna þeim tengdum hér á landi telur Samkeppniseftirlitið nauðsynlegt að setja samrunanum ýmis skilyrði sem varða starfsemi og rekstur félagsins og grípa til íhlutunar á grundvelli samkeppnislaga. Viðræður við samrunaaðila hafa leitt til sáttar um skilyrði í málinu. Telur Samkeppniseftirlitið að skilyrðin leysi hin samkeppnislegu vandamál sem stafa af samrunanum. Hafa samrunaaðilar fallist á að hlíta þeim. Skilyrðin eru m.a. eftirfarandi: Greiðsluveitan skal rekin á sjálfstæðum viðskiptalegum forsendum að því er varðar þá þætti starfseminnar sem eru á samkeppnismarkaði og skal Seðlabanki Íslands gæta þess að samkeppnisrekstur hennar sé ótengdur öðrum lögbundnum verkefnum bankans. Samkeppnisrekstur Greiðslu-veitunnar er sú starfsemi sem felst í rekstri á RÁS-kerfi félagsins. Seðlabanki Íslands skal birta opinberlega stefnu sína sem eigandi Greiðsluveitunnar. Stjórnarmenn í Greiðsluveitunni skulu vera óháðir viðskiptavinum fyrirtækisins. Greiðsluveitunni er skylt að gæta jafnræðis og hlutlægni gagnvart þeim aðilum sem óska eftir tengingu við kerfi Greiðsluveitunnar og þjónustu félagsins og má ekki mismuna aðilum í þeim viðskiptum nema málefnalegar ástæður liggi því til grundvallar. Greiðsluveitan skal fyrir 1. apríl nk. birta opinberlega viðskiptaskilmála sína. Greiðsluveitan skal tilkynna Samkeppniseftirlitinu um allar breytingar á viðskiptaskilmálunum eigi síðar en tveimur vikum áður en þeim er ætlað að taka gildi. Greiðsluveitunni er óheimilt að skuldbinda Borgun eða Valitor í viðskipti við RÁS-kerfi félagsins á árunum 2012 og 2013 sem eru umfram tiltekið hlutfall af færslumagni hvors félags á árinu 2010. Greiðsluveitan skal hafa forgöngu um að nauðsynleg staðlagerð sem tengist RÁS-kerfinu og notkun greiðslukorta fari fram á opnum vettvangi þar sem tryggt er að allir hagsmunaaðilar sem tengjast notkun greiðslukorta hér á landi hafi óhindraðan aðgang að því starfi á málefnalegum forsendum. Greiðsluveitan skal fyrir 1. júní 2011 gera Samkeppniseftirlitinu grein fyrir með hvaða hætti staðið verður að varðveislu og umsjón með marghliða samningum, reglum og fyrirmælum um einstaka greiðslumiðla banka og sparisjóða.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira