Kópavogur: Ætla að greiða niður milljarð árlega 9. febrúar 2011 13:02 Kópavogur.
Tillaga að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar til næstu þriggja ára var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar í gær samkvæmt tilkynningu frá bænum. Þar segir að hún sé byggð á markmiðum fjárhagsáætlunar ársins 2011 þar sem m.a. er stefnt að því að greiða inn á skuldir bæjarsjóðs um milljarð á ári næstu árin. Gert er ráð fyrir því að seinni umræða fari fram í lok febrúar. Samkvæmt áætluninni er miðað við að rekstrarafgangur verði á samstæðureikningi næstu árin, eða 144 milljónir árið 2012, 263 milljónir árið 2013 og 365 milljónir árið 2014. Þá er stefnt að því að skuldir sem hlutfall af tekjum lækki og verði 179,5% árið 2014. Gert er ráð fyrir því að rekstur bæjarins verði í föstum skorðum á tímabilinu og að áfram verði gætt ítrasta aðhalds. Áætlað er að framkvæma fyrir milljarð á árinu 2012, 1,1 milljarð árið 2013 og 1,6 milljarða árið 2014. Inni í þessum tölum eru fjárfestingar vegna félagslegra íbúða. Í framkvæmdum er megináhersla lögð á að ljúka samningsbundnum verkefnum, endurbæta grunnskóla, byggja nýjan leikskóla, gera átak á leigumarkaði, taka í notkun nýtt húsnæði héraðsskjalasafns og bókasafns í efri byggðum, undirbúa stofnun nýs framhaldsskóla í bænum og endurbyggja gamla hressingarhælið og Kópavogsbæinn.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira