Gætu varpað ljósi á lánveitingar Kaupþings 29. janúar 2011 12:48 Ólafur Þór Hauksson. Embætti sérstaks saksóknara hefur til rannsóknar meinta markaðsmisnotkun Kaupþings banka en talið er að gögn frá Kaupþingi banka í Lúxemborg, sem nú starfar undir heitinu Banque Havilland, hafi verulega þýðingu fyrir rannsókn málsins. Mynd/Stefán Karlsson
Gögn sem sérstakur saksóknari fær afhent frá Lúxemborg gætu varpað ljósi á háar lánveitingar til eignarhaldsfélaga sem fengu lán til að kaupa skuldatryggingar og hlutabréf Kaupþings banka. Embætti sérstaks saksóknara hefur til rannsóknar meinta markaðsmisnotkun Kaupþings banka en talið er að gögn frá Kaupþingi banka í Lúxemborg, sem nú starfar undir heitinu Banque Havilland, hafi verulega þýðingu fyrir rannsókn málsins. Sérstakur saksóknari er meðal annars að rannsaka lánveitingar Kaupþings í Lúxemborg til eignarhaldsfélaga sem fengu lán til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi og skuldatryggingar á bankann. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að Kaupþing banki hafi verið milliliður við sölu á skuldatryggingum á sjálfan sig. Útgefandi lánshæfistengda skuldabréfsins var Deutsche Bank, þ.e. kaupandi skuldatryggingar, en kaupendur skuldabréfsins og þar með seljendur skuldatryggingarinnar voru stórir viðskiptavinir Kaupþings banka. Nokkur félög sem voru í viðskiptum við Kaupþing í Lúxemborg keyptu lánshæfistengd skuldabréf af Deutsche Bank. Kaupþing í Lúxemborg lánaði félögunum Trenvis Ltd., Charbon Capital Ltd. og Holly Beach til þess að fjármagna félagið Chesterfield United, sem var í eigu Kevin Stanford, Karen Millen Tony Yerolemou og Skúla Þorvaldssonar, upp á alls 130 milljónir evra til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing. Grunur leikur á að kaup á skuldatryggingum gegnum viðskiptavini hafi verið tilraun af hálfu Kaupþings banka til að hafa áhrif á verð skuldatrygginganna. Félögin keyptu tryggingar á sama tíma og verðmyndun á markaði með skuldatryggingar Kaupþings var bankanum mjög óhagstæð. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, sagði í bréfi til vina og vandamanna í janúar árið 2009 ári að Kaupþing hefði gripið til þess ráðs að lána traustum viðskiptavinum til þess að kaupa tryggingarnar að tillögu Deutsche Bank. Skuldatryggingarálagið á Kaupþing hefði farið hækkandi og stjórnendur hefði grunað að verið væri að spila með tryggingarnar. Hæstiréttur Lúxemborgar hefur nú úrskurðað að lögreglunni í Lúxemborg beri að afhenda sérstökum saksóknara gögn sem haldlögð voru í húsleit hjá Banque Havilland í Lúxemborg hinn 12. febrúar á síðasta ári. Talið er að gögnin hafi verulega þýðingu fyrir rannsókn á lánveitingum Kaupþings í Lúxemborg til áðurnefndra félaga. Þá er talið að gögnin varpi ljósi á ýmis viðskipti og skýri viðskiptafléttur hjá bankanum fyrir bankahrunið.
Tengdar fréttir Stjórnendur Kaupþings hugsanlega yfirheyrðir á ný Hugsanlega þarf að kalla stjórnendur og aðra starfsmenn Kaupþings aftur í yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara nú þegar Hæstiréttur Lúxemborgar hefur úrskurðað um að afhenda skuli embætti sérstaks saksóknara gögn sem haldlögð voru í húsleit hjá Banque Havilland í febrúar á síðasta ári. Embættið er meðal annars að rannsaka meinta markaðsmisnotkun Kaupþings banka og önnur brot sem varða auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga. 29. janúar 2011 10:09 Sérstakur saksóknari fær gögnin frá Lúxemborg Hæstiréttur Lúxemborgar hefur úrskurðað að lögregluyfirvöld afhendi sérstökum saksóknara á Íslandi öll gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg. Gögnin eru talin hafa verulega þýðingu fyrir rannsókn á Kaupþingi. 28. janúar 2011 18:36 Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira
Stjórnendur Kaupþings hugsanlega yfirheyrðir á ný Hugsanlega þarf að kalla stjórnendur og aðra starfsmenn Kaupþings aftur í yfirheyrslu hjá embætti sérstaks saksóknara nú þegar Hæstiréttur Lúxemborgar hefur úrskurðað um að afhenda skuli embætti sérstaks saksóknara gögn sem haldlögð voru í húsleit hjá Banque Havilland í febrúar á síðasta ári. Embættið er meðal annars að rannsaka meinta markaðsmisnotkun Kaupþings banka og önnur brot sem varða auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga. 29. janúar 2011 10:09
Sérstakur saksóknari fær gögnin frá Lúxemborg Hæstiréttur Lúxemborgar hefur úrskurðað að lögregluyfirvöld afhendi sérstökum saksóknara á Íslandi öll gögn úr Banque Havilland bankanum í Lúxemborg. Gögnin eru talin hafa verulega þýðingu fyrir rannsókn á Kaupþingi. 28. janúar 2011 18:36