Enn hafa engin lán fengist vegna Búðarhálsvirkjunar 29. janúar 2011 19:06 Búðarhálsvirkjun. Mynd/Landsvirkjun
Engin lán hafa enn fengist til Búðarhálsvirkjunar og neyðast Landsvirkjun og Ístak nú til að endursemja um framvindu verksins svo framkvæmdir stöðvist ekki. Haft hefur verið á orði að virkjanaframkvæmdirnar við Búðarháls gætu orðið táknrænt upphaf endurreisnar efnahagslífsins. Landsvirkjun ákvað að heimila Ístaki að hefja vinnu þar í vetrarbyrjun, en þó aðeins takmörkuð undirbúningsverk fyrir allt að 500 milljónir króna, og voru þá vonir bundnar við að langtímafjármögnun væri að komast í höfn. Þær vonir hafa ítrekað brugðist og hefur Landsvirkjun enn ekki geta fengið nein lán til að koma Búðarhálsi á fulla ferð. Nú sér fyrir endann á undirbúningsvinnunni, sem búið var að heimila á virkjunarsvæðinu, og hafa Landsvirkjun og Ístak því neyðst til að setjast niður til að semja um hvernig verkinu þar verður fram haldið. Samkvæmt upplýsingum Stöðvar 2 er stefnt að því að gengið verði frá samkomulagi eftir helgi sem gerir ráð fyrir að Landsvirkjun heimilar Ístaki að hefja vinnu við bæði stöðvarhús og inntaksstíflu, en þó með fyrirvara um að hægt sé að stöðva verkið, ef ekki rætist úr fjármögnun á næstunni. Þau mál gætu farið að skýrast því vonir eru bundnar við að lán fáist fljótlega frá Norræna fjárfestingarbankanum. Fjárfestingarbanki Evrópu virðist hins vegar ætla að bíða með lánveitingu þar til Alþingi hefur staðfest Icesave-samningana.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira