Viðskiptaráð viðurkennir ábyrgð í hruninu 19. janúar 2011 09:20
Viðskiptaráð Íslands getur ekki skorast undan að hafa verið þátttakandi í því. „ástandi" sem skapaðist í aðdragenda bankahrunsins haustið 2008. Þetta kemur fram í nýrri skoðun frá ráðinu sem birt hefur verið á vefsíðu þess. Þar segir að því miður hefur gagnrýni á ýmsa þætti í starfsemi ráðsins að mörgu leyti verið réttmæt. „Í kjölfar falls bankakerfisins haustið 2008 hefur Íslendingum verið ofarlega í huga að gera upp og skilja hjá hverjum ábyrgð á þeirri atburðarás liggur. Er það bæði rétt og nauðsynlegt svo hægt sé að læra af því sem gerðist, breyta starfsháttum og tryggja að samskonar ástand verði ekki aftur ríkjandi," segir í skoðun Viðskiptaráðs. „Ágætt er að nota orðið „ástand" yfir það hugarfar sem hér var ráðandi fyrir hrun. Með sanni má segja að margir hafi gagnrýnislítið tekið þátt í því að hér varð til kerfi sem ekki tókst að vinda ofan af nema með þeim afleiðingum sem nú eru öllum kunnar. Viðskiptaráð Íslands getur ekki skorast undan að hafa verið þátttakandi í því. Ráðið hefur því ekki farið varhluta af gagnrýni á störf þess á árunum fyrir fall bankanna, en sú gagnrýni snýr að nokkrum meginatriðum: Skýrslum um fjármálakerfið frá árunum 2006 og 2007 Meintum áhrifum á ákvarðanir löggjafans Áherslu á sjálfsprottnar reglur atvinnulífs Ofmetnaði í útgáfu Stuðningi við innihaldslítinn ímyndaráróður Því miður hefur gagnrýni á þessa þætti í starfsemi ráðsins að mörgu leyti verið réttmæt. Fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis að starfsháttum viðskiptalífsins var ábótavant árin fyrir hrun, meðal annars hvað varðar gagnsæi, góða stjórnarhætti og samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Þar stóð Viðskiptaráð ekki vaktina sem skyldi og fagnar ráðið gagnrýninni og málefnalegri umræðu. Á grunni hennar verður lögð rík áhersla á endurskoðun ýmissa þátta í starfi Viðskiptaráðs. Sú endurskoðun hófst raunar fljótlega eftir bankahrun og hefur verið áherslumál stjórnar ráðsins síðan þá. Málefnastarfi Viðskiptaráðs er hins vegar ekki ætlað að vera óumdeilt. Ráðið hefur starfað í 93 ár og alla tíð staðið fyrir ákveðin grunngildi. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að stærð og umsvif hins opinbera raski ekki jafnvægi milli opinberra og einkaaðila í hagkerfinu. Því tengt hefur Viðskiptaráð ávallt lagt áherslu á mikilvægi einstaklingsframtaks og kröftugs markaðsbúskapar fyrir framþróun heilbrigðs og alþjóðlega samkeppnishæfs atvinnulífs. Hvoru tveggja er grundvöllur verðmætasköpunar og velferðar í íslensku samfélagi."
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira