Miklar sveiflur á íbúðaverði milli mánaða 19. janúar 2011 12:04
Miklar sveiflur eru í íbúðaverði á milli mánaða. Þannig lækkaði íbúðaverð um 1,2% í desember síðastliðnum samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands. Íbúðir í sérbýli lækkuðu um 1% frá fyrri mánuði í desember og íbúðir í fjölbýli lækkuðu um 1,3%. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði lítillega að nafnverði á síðasta ári eða um 0,2% samkvæmt mælingum Þjóðskrár Íslands sem birti vísitölu íbúðaverðs í desember í gær. Að teknu tilliti til verðbólgu lækkaði íbúðaverð hinsvegar um rúm 3% á árinu. Hvort sem litið er til þróunar nafnverðs eða raunverðs er ljóst að spár um miklar verðlækkanir á þessum markaði á árinu gengu ekki eftir. Viðskipti með íbúðarhúsnæði hafa heldur verið að glæðast undanfarna mánuði. Í desember mánuði síðastliðnum voru samtals gerðir 313 kaupsamningar um íbúðarhúnsæði á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tölum Þjóðskrár Íslands sem er fjölgun um 11,4% frá fyrri mánuði og fjölgun um 48,3% frá sama mánuði fyrra árs. Heildarvelta kaupsamninga í desember síðastliðnum nam 9,1 milljarði kr. og meðalupphæð á hvern kaupsamning nam 29,1 milljón kr. Eftir mikla lægð virðist áhugi á íbúðarkaupum því vera að glæðast á ný. Til viðbótar við ofangreindar tölur má nefna að vísitala Capacent Gallup sem mælir áhuga landsmanna á fyrirhuguðum húsnæðiskaupum hefur ekki mælst hærri síðan í september fyrir hrun. Vísitalan sem birt var í desember mælist nú 7 stig sem er 2,7 stigum hærri en í síðustu mælingu sem fram fór í september síðastliðnum. Þrátt fyrir að veltan sé nú að aukast er hún enn mjög lítil miðað við það sem áður var en á tímabilinu 2003-2008 voru að meðaltali gerðir 750 kaupsamningar í mánuði hverjum eða ríflega helmingi fleiri samningar en gerðir voru í desember síðastliðnum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira