Nýr forstjóri Reiknistofu bankanna ráðinn 8. febrúar 2011 09:38 Friðrik Þór Snorrason
Stjórn Reiknistofu bankanna hf. hefur ráðið Friðrik Þór Snorrason sem næsta forstjóra félagsins en Helgi H. Steingrímsson, sem gengt hefur því starfi frá 1996, ákvað eftir 15 ára farsælan feril hjá félaginu að láta af störfum nú í febrúar. Jensína K. Böðvarsdóttir stjórnarformaður Reiknistofu bankanna lýsir ánægju með ráðningu Friðriks Þórs í fréttatilkynningu sem félagið sendi frá sér í dag. „Friðrik hefur víðtæka reynslu af uppbyggingu tækni- og þjónustufyrirtækja og breytingarstjórnun, sem eru þeir kostir sem stjórnin leitaði að. Reiknistofa bankanna stendur á ákveðnum tímamótum eftir að félaginu var breytt úr félagsamtökum í hlutafélag nú um áramótin. Fyrirtækið þarf því traustan og metnaðarfullan leiðtoga sem mun leiða þróun þess í markaðsdrifið þjónustufyrirtæki." Friðrik hefur gengt ýmsum stjórnunar og ráðgjafarstörfum innan tæknigeirans undanfarin 11 ár á Íslandi, Bandaríkjunum og Bretlandi. Friðrik hefur verið framkvæmdastjóri tækni- og rekstarþjónustufyrirtækisins Skyggnis síðan 2008 en þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Nýherja. Hann hefur jafnframt setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og samtaka og er í dag formaður Samtaka íslenskra gagnaversfyrirtækja. Friðrik mun hefja störf hjá Reiknistofu bankanna í lok febrúar. Friðrik er kvæntur Guðrúnu Wium Guðbjörnsóttir, forstöðumanni hjá TAL, en saman eiga þau tvo syni. Friðrik er með MSc í alþjóðasamskiptum frá London School of Economics og BA frá University of Wisconsin í sama fagi. Reiknistofa bankanna var stofnuð 1973 og hefur til þessa verið rekin sem kostnaðareining. Reiknistofa bankanna er traust og öflugt þjónustufyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem þjónar bönkum, sparisjóðum og kortafyrirtækjum. Félagið hefur þróað öll megin greiðslukerfi landsins og rekur fjárhags- og lánakerfi fyrir ýmsar fjármálastofnanir. Hjá félaginu starfa 120 starfsmenn og var ársvelta þess 2.700 milljónir króna árið 2009.
Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Fleiri fréttir Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Sjá meira