Afskrifar átta milljarða á þremur árum 26. janúar 2011 00:01 Byggðastofnun Þörf er á 3,5 milljarða ríkisframlagi til stofnunarinnar. fréttablaðið/vilhelm
stjórnsýsla Stjórnendur Byggðastofnunar telja að stofnunin þurfi að leggja 4,3 milljarða króna á afskriftarreikning í ársreikningi 2010. Þegar hafa 2,8 milljarðar verið lagðir á afskriftarreikning en stjórnendurnir meta það svo að þörf sé á 1,5 milljörðum til viðbótar. Hefur stofnunin þá lagt samtals 8,2 milljarða á afskriftarreikning frá 2008. Þetta er upplýst í skýrslu starfshóps sem fjallaði um lánastarfsemi Byggðastofnunar í kjölfar þess að eigið fé hennar var komið undir lögbundið lágmark. Í sumar var eiginfjárhlutfallið komið í 5,18 prósent en samkvæmt lögum á eiginfjárgrunnur fjármálafyrirtækis að nema að lágmarki átta prósentum af áhættugrunni. Í skýrslunni eru ástæður svo lágs hlutfalls Byggðastofnunar sagðar framlög í afskriftasjóð, lægri vaxtatekjur en áætlað var og gengistap vegna styrkingar krónunnar. Tekið er fram að þrátt fyrir að eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar sé undir lögbundnu marki glími hún ekki við lausafjárvanda. Stofnunin hafi handbært fé sem nemi tæpum tveimur milljörðum króna til að standa við skuldbindingar út árið. Auk þess hafi hún þriggja milljarða króna lántökuheimild samkvæmt fjárlögum. Í fimm ára rekstraráætlun Byggðastofnunar, sem gerir ráð fyrir árlegum tveggja milljarða króna útlánum og hálfs milljarðs framlagi á afskriftarreikning, telur stofnunin nauðsynlegt að ríkið leggi henni til 3,5 milljarða króna. 2,5 milljarðar verði lagðir til á þessu ári en samtals milljarður á næstu fjórum árum. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira