Stjórn OR rifti samningi við Álftanes Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. janúar 2011 16:59
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í gær að rifta samningi fyrirtækisins og Sveitarfélagsins Álftaness frá árinu 2007 um kaup, uppbyggingu og rekstur fráveitu Álftaness. Orkuveitan segir að ástæðan sé verulegar vanefndir sveitarfélagsins á greiðslum til OR samkvæmt samningnum. Krafa OR á hendur sveitarfélaginu nemur tæpum 90 milljónum króna. Orkuveitan keypti fráveitu Álftaness í janúar 2007 á 57,5 milljónir króna og tók þar með að sér uppbyggingu og rekstur hennar. Í samningnum var kveðið á um að OR fengi greiðslur frá sveitarfélaginu - fast gjald og gjald á hvern fermetra húsnæðis auk stofngjalda - en sveitarfélagið innheimti gjöld af notendum. Greiðslur sveitarfélagsins til Orkuveitunnar átti að inna af hendi mánaðarlega. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að erfiðlega hafi gengið að fá þessar greiðslur sem sveitarfélagið hafi þó innheimt af íbúum. Nú sé svo komið að öll fráveitugjöld ársins 2010 séu í vanskilum, auk stofngjalda vegna nýrra hverfa árin 2008, 2009 og 2010. Um nýliðin áramót hafi krafa OR á hendur Álftanesi numið rúmum 89 milljónum króna með vöxtum. Á móti komi krafa sveitarfélagsins um fráveituframkvæmdir, sem hafi tafist af ýmsum ástæðum og þar með frestað samningsbundnum útgjöldum OR. Fundir með bæjaryfirvöldum og sérstakri fjárhaldsstjórn sveitarfélagsins hafa ekki borið árangur og því var gripið til þess af hálfu OR að rifta samningnum. Við riftunina hefur eignarhald og ábyrgð á rekstri fráveitunnar nú þegar flust aftur yfir til sveitarfélagsins.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira