Veltan á gjaldeyrismarkaði tvöfaldaðist milli ára í janúar 7. febrúar 2011 10:32
Veltan á millibankamarkaði með gjaldeyri var nokkuð meiri nú í nýliðnum janúarmánuði en hún hefur verið undanfarið, að desember síðastliðnum undanskildum. Raunar tvöfaldaðist veltan á milli janúar nú og janúar í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að Í janúar nam heildarveltan á millibankamarkaði 3.445 milljónum kr. og voru viðskipti Seðlabankans þar af 937 milljónir kr., eða um 27% af heildarveltunni. Þetta er töluvert meiri velta en fyrir ári síðan, jafnvel þegar kaup Seðlabankans eru undanskilin nú í janúar, en bankinn hélt að sér höndum á gjaldeyrissmarkaði frá desember 2009 og fram til ágúst síðastliðins. Í janúar í fyrra námu viðskipti á millibankamarkaði 1.252 milljónum kr. og var veltan þar með tvöfalt meiri nú þegar viðskipti Seðlabankans eru frátalin. Þó ber augljóslega að hafa í huga að þrátt fyrir að velta á millibankamarkaði sé lítil geta gjaldeyrisviðskipti hjá hverjum viðskiptabanka fyrir sig verið talsverð. Ef þokkalegt jafnvægi er í innflæði gjaldeyris og útflæði hjá hverjum banka fyrir sig hafa þeir þannig ekki þörf fyrir að leita á millibankamarkað með kaup eða sölu gjaldeyris. Gengi krónunnar veiktist þó nokkuð í janúar síðastliðnum og var gengisvísitala hennar, sem vegur saman verð gjaldmiðla helstu viðskiptaþjóða Íslands, að meðaltali 211,6 stig. Svo há hefur gengisvísitala krónunnar ekki verið að meðaltali í einum mánuði síðan í júlí síðastliðnum. Telja má upp nokkra þætti sem hér gætu verið að spila stórt hlutverk eins og vaxtaútflæði til erlendra eigenda ríkisbréfa, kaup Seðlabankans á gjaldeyri í lok síðasta árs og svo tímabundnir þættir á borð við lítið ferðamannainnflæði. Þó er augljóslega ekki hægt að svara því með óyggjandi hætti hvað sé að valda þessari lækkun krónunnar, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira