Viðskipti innlent

Íslenskt gjaldþrotamet líklega slegið á fimmtudag

Á fimmtudaginn birtir Hagstofan tölur um nýskráningar og gjaldþrot fyrirtækja í desember 2010 og þá verður ljóst hvort að nýtt met verður slegið í fjölda gjaldþrota á nýliðnu ári. Því miður er útlit fyrir að svo verði, en fyrstu 11 mánuði síðasta árs voru 877 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem er aukning um 5,8% á milli ára.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á sama tímabili árið 2009 höfðu 829 fyrirtæki hlotið sömu örlög. Alls voru 101 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í nóvember síðastliðnum samanborið við 80 fyrirtæki á sama tíma í fyrra. Gjaldþrot jukust því um 26% í nóvember frá fyrra ári.

Allt útlit er því fyrir að fyrra met frá árinu 2009 hvað varðar fjölda gjaldþrota verði slegið út. Árið 2009 voru 910 fyrirtæki úrskurðuð gjaldþrota sem var það mesta sem sést hefur undanfarna áratugi.

„Óhætt er að segja að flestir hafi í upphafi síðasta árs vonast til þess að það met yrði ekki slegið og að birta tæki til í atvinnulífinu," segir í Morgunkorninu.

„Þær vonir hafa því miður brugðist enda hefur fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja gengið mun hægar fyrir sig en vonast var til, efnahagsbatanum hefur seinkað og lítið hefur verið um fjárfestingar í atvinnulífinu. Horfur fyrir árið eru þó bjartari og gert er ráð fyrir að hagvöxtur taki við af samdrætti á þessu ári og því má því reikna með að gjaldþrotum fyrirtækja fari fækkandi að sama skapi."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×