Aflaverðmætið jókst um 16,5% á tíu mánuðum í fyrra 20. janúar 2011 09:10
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam tæpum 112 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010 samanborið við rúma 96 milljarða kr. á sama tímabili árið 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæpa 16 milljarða kr. eða 16,5% á milli ára. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að aflaverðmæti botnfisks var í lok október orðið 78,5 milljarðar kr. og jókst um 16,9% frá sama tíma árið 2009 þegar aflaverðmætið nam 67,1 milljarði kr. Verðmæti þorskafla var um 37,2 milljarðar kr. og jókst um 25,5% frá fyrra ári. Aflaverðmæti ýsu nam 13,1 milljarði kr. og dróst saman um 1,6% milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 9,8 milljörðum kr., sem er 18,9% aukning frá árinu 2009. Verðmæti ufsaaflans jókst um 26,5% milli ára og nam 7,2 milljörðum kr. á fyrstu tíu mánuðum ársins 2010. Verðmæti flatfiskafla nam tæpum 8,1 milljarði króna í janúar til október 2010, sem er 3,7% samdráttur frá fyrra ári. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 22,2% milli ára og nam 22,9 milljörðum kr. Verðmæti síldaraflans í janúar til október nam tæpum 8 milljörðum kr. sem er 22,3% samdráttur frá sama tímabili árið 2009. Verðmæti makríls nam 7,9 milljörðum samanborið við 4,5 milljarða fyrstu tíu mánuði ársins 2009. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam tæpum 45 milljörðum króna og jókst um 25,1% frá árinu 2009. Aflaverðmæti sjófrystingar voru rúmir 41,4 milljarðar kr., sem er 24,1% aukning milli ára. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 27,2% milli ára og var um 16,1 milljarður kr.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Samfélagslegt mál að jafnrétti sé virt Framúrskarandi fyrirtæki Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Skoða að sameina Tesla og SpaceX Viðskipti erlent Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sjá meira