Landsbankinn hraunar yfir fréttaflutning Morgunblaðsins 11. febrúar 2011 12:34
Landsbankinn hefur ekki óskað eftir sérstökum fundi með Skilanefnd Landsbanka Íslands hf. til að ,,vara við því að hætta væri á að greiðsluflæði gjaldeyris inn í NBI stæði ekki fyllilega undir afborgunum af skuldabréfinu..." eins og lesa má í frétt Morgunblaðsins í dag. Sú frétt er reyndar stormur í vatnsglasi og þjónar einhverjum tilgangi öðrum en að upplýsa lesendur. Þetta segir í tilkynningu frá Landsbankanum þar sem forsíðufrétt Morgunblaðisins er harðlega gagnrýnd. „Gjaldeyrisstaða Landsbankans er sterk og gjaldeyriseignir og -skuldir í jafnvægi. Þegar horft er 5 - 7 ár fram í tímann kann að verða misræmi milli inn- og útgreiðslna í erlendri mynt en það er þó alls ekki víst. Alltaf hefur verið ljóst að Landsbankinn þyrfti að endurfjármagna hluta af erlendum skuldum sínum líkt og á við um flesta banka og fyrirtæki hér á landi og erlendis," segir í tilkynningunni. „Einhverjir munu lesa frétt Morgunblaðsins og þá sérstaklega fyrirsagnir á innsíðum sem svo að bankinn standi ekki undir skuldbindingum sínum. Óþarft er að hafa áhyggjur af slíku, bankinn er með mjög sterka eiginfjárstöðu og telur enga þörf á frekari inngreiðslum eiginfjár frá eigendum. Lausafjárstaða Landsbankans er einnig mjög sterk, hlutfall hennar er um 46% af innlánum sem er mjög hátt og því ætti Landsbankinn að geta keypt erlendan gjaldeyri á næstu árum til að mæta skuldbindingum sínum, gerist þess þörf. Afar ólíklegt verður því að teljast að þessi atburðarás sem Morgunblaðið oftúlkar að hætti hússins, muni hafa áhrif á Icesave málið og skuldbindingar íslenska ríkisins vegna þess. Í annað skipti á mjög stuttum tíma hefur Morgunblaðið nú kosið að birta villandi skrif á forsíðu um Landsbankann. Síðastliðinn laugardag dregur blaðið fram með áberandi hætti, byggt á stopulu minni útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins, að ríkið hafi lagt Landsbankanum til 280 milljarða króna. Hið rétta er að ríkið lagði bankanum til 122 milljarða króna og skeikar því litlum 158 milljörðum króna. Óskandi væri að Morgunblaðið sýndi lesendum sínum þá kurteisi að grafast fyrir um staðreyndir og birta það sem sannast er."
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira